Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Síða 23

Heima er bezt - 01.07.1999, Síða 23
ir í Hvalfirði. Fyrirtækið Dorman Long, verktaki hjá breska hemum, var að byggja stórskipabryggju í Hvítanesi en breskir hermenn ásamt allmörgum íslendingum, unnu að vegagerð í fjallshlíðinni ofan og utan Hvítaness. Einn íslend- inganna var Guðmundur Þ. Sigur- bjömsson frá Bjargarsteini á Akra- nesi. Hann átti myndavél í farteski sínu og tók myndir. Segja má að alldjarft hafi verið teflt, því að ef hernaðaryfirvöld kæmust á snoðir um slíkan verknað, hlaut það að kosta hand- töku, yfirheyrslur og jafnvel flutning úr landi. í víghreiðri því, sem Hvalfjörður var orð- inn, var engra griða að vænta. Svo alvar- legt var það. En ævin- týri íslendings var myndefnið við forvitni- legar aðstæður. Herskipin, sem komu inn í Hvalfjörð, vom af ýmsum gerð- um og stærðum og ný- stárleg sjón vegfarend- um og þeim, sem unnu eða vom búsettir á þessum slóðum. Og stærst allra var Hood. Það var ekki ótrúlegt að um ferðir þess væri hin mesta leynd og verndaraðgerðir allar, svo sem framast var unnt. í bókinni „Árin sem aldrei gleymast," eftir Gunnar M. Magnúss, er út kom árið 1964, segir svo: „Hinn 28. apríl, seint um kvöldið, renndi svo Hood einig til hafs. Hafði skipið legið vikutíma fyrir innan Hvammsnes þar í firðinum. Nokkmm dögum síðar kom Hood aftur inn í Hvalfjörð. Tundurdufla- slæðarar komu þá á vettvang sem fýrr og leitarljósum var beitt, alla nóttina. Auðséð var að Bretar gættu þessa skips af sérstakri alúð. Daginn eftir sigldi Hood svo aftur út. Og enn mun Hood hafa komið einu sinni eða tvisvar til Hvaifjarðar áður en hinn mikli hildarleikur hófst, laust upp úr 20. maí." í bók Friðþórs Eydal, „Vígdrekar og vopnagnýr," sem kom út í lok ársins 1997, er á orðinn kostur gleggri heimilda. Hood kom í Hval- fjörð aðeins tvisvar sinnum og var þar 21. til 28. apríl og síðar 3. til 4. maí. Að liðinni meir en hálfri öld frá stríðlokum er leynd og varúð vordaganna 1941 orðin sögulegt viðfangsefni öllum frjálst. En þannig var það ekki þegar Guð- mundur mundaði myndavélina að stórskipinu Hood laugardaginn 3. maí 1941 frá vinnustað sínum, þar sem sjá má Hvítanessbæinn í for- grunni. Þegar vinnu var lokið þennan sama dag, kom Guðbrandur Thor- lacius á báti sínum yfir fjörðinn að sækja nokkra verkamenn hersins, sem heima áttu á Akranesi og fýsti að fara heim til sín um helgina. Þegar Eyjólfur Arthúrsson, seinna málarameistari í Reykjavík, rifjaði upp, mörgum áratugum síðar, hverjir voru samferðarmenn hans í bátnum, minnist hann Maríusar bróður síns, Magnúsar Guðmunds- sonar, jóns Ingólfssonar og Guð- mundar Þ. Sigurbjörnssonar. Á stíminu höfðu þeir stórskipið Hood á bakborða og enn tók Guð- mundur mynd. Norðan fjarðarins var land tekið á Hrafneyri og ferð- inni haldið áfram í bíl til Akraness. Atburðir næstu daga eru óljósir í minni manna sem þarna unnu, enda langt um liðið. Fréttin um hin skelfi- legu afdrif Hood barst þó fljótlega eftir endalok þess. Sem kunnugt er var skipið skotið í tætlur af Bismark hinum þýska og sökk það með nærri allri áhöfn. 1419 mann létu þar líf sitt en aðeins þremur var bjargað. Þá var laugardagur 24. maí um klukkan 6 að morgni. En Hvalfjörður var enn sem fyrr, vettvangur stríðsaðgerða og þar var ekki slakað á varúð og gæslu. Herskipin komu þangað inn löskuð og með særða menn og dána eftir sjórorrustuna miklu, þegar Bismark var sökkt 27. maí. Vegavinna og önnur störf Islendinganna í Hvalfirði héldu áfram. Á því varð engin breyting nema helst sú, að myndatökur lögðust af. Kannski hefur mönnum skilist hví- líkt hættuspil slíkt var og best að hlíta hinum hörðu reglum. Hvort örlög Hood hafa þar ráðið einhverju um, skal ósagt látið. Filman, sem geymdi myndirnar hans Guðmundar, líklega þær síð- ustu og ef til vill þær einu, sem ís- lendingur tók af Hood í Hvalfirði, voru ekki framkallaðar fyrr en stríð- inu var lokið. Heimildir: Myndir Guðmundar Þ. Sigurbjömssonar, Viðtal við Eyjólf Arthúrsson, Gunnar M. Magnúss: Árin sem aldrei gleymast, Friðþór Eydal: Vígdrekar og vopnagnýr. Heima er bezt 263

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.