Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Side 43

Heima er bezt - 01.07.1999, Side 43
inn eftir, þann 20. febrúar klukkan fimm, lögðum við af stað frá Eski- firði. Á var komin vestan kaldi með þriggja stiga hita svo að snjórinn fauk ekki neitt. Einstaka skýhnoðri sást á lofti, annars var heiðskírt að heita mátti. Okkur kom saman um að vissara væri að hafa með sér skíði, ef við gætum eitthvað flýtt íyrir okkur með þeim, þegar upp væri komið, en engin leið var að ganga á þeim upp á móti brattanum, bæði vegna þess að hankar voru lélegir og mennimir óvanir á skíðum. Tösku höfðu þeir með ýmsu dóti, sem mun hafa vegið um 25 kíló. Þótti mér það töluverður ábætir að draga þrenn skíði og troða slóðina. Nú var fýlgt veginum inn fýrir Bleiksá, en þaðan gengið skáhalt fram og upp undir Harðskafa, síðan inn með honum upp í Þverárdal og þá tekin stefha á Jökulbotninn. Heldur fannst mér ferðin sækjast seint, því að þótt ég færi á undan og hefði þetta að bera og draga, þurftu heildsalamir að stansa öðm hvom til þess að kasta mæðinni. Var klukkan farin að ganga tíu, þegar við komum upp á jökulbrún. Sagði ég þá að nú yrðu þeir að reyna hvort þeir gætu ómögulega staðið á skíðunum. Þeir tóku því dauflega, en þó fór svo að Böðvar reyndi. Lýsti Bender tilrauninni með þessum orð- um: „Da Böðvar skúldi til að gá pá skí, gik ben í lúften og faldt sá pá jor- den." Svona fór með sjóferð þá. Hvomg- ur þeirra gat gengið á skíðum, ekki einu sinni á jafnsléttu og var því ekki um annað að gera fyrir mig en að halda áfram að draga þau. Við vomm nú búnir að vera á fimmta klukkutíma að komast það sem venjulega er gengið á tveimur tímum á auðri jörð. Veður hélst óbreytt að mestu. Þó var farið að reka á smá hviður og vindátt virtist vera að færast í norðvestur, enda farið að draga upp bliku fýrir landi. Snjór var heldur dýpri yfir sjálfan jökulinn, sérstaklega að norðan. Ég vildi nú fara að flýta ferðinni, batt því skíðin öll saman og bar þau nið- ur brattann. Gat ég þá farið fremur greitt. Böðvar komst nú dálítið áfram en Bender var svo hræddur um að velta yfir sig í brattanum að hann varð að skorða sig af í hverju spori. Þó hafði hann verið að segja á uppleiðinni: „Ja, nár jeg er först kommet op, sá kommer jeg nok ned igen." En mér fannst nú að svo lengi sem hann var að pilla sig upp, væri han þó enn lengur að komast niður aft- ur. Við mjökuðumst samt niður á vörpin á Mjóafjarðarheiði. Þegar þangað kom var klukkan farin að ganga tvö og við búnir að vera átta klukkutíma frá Eskifirði. Hefðum við þá í sæmilegri færð átt að geta verið komnir á Seyðisfjörð. Við tökum nú upp nestisbita, sem við höfðum með okkur, en þegar við erum búnir að borða og ætlum að fara að pilla okkur upp á Gagnheið- ina, er allt í einu skollinn á blindbyl- ur með skaraveðri ofan af Gagn- heiðarhnjúkunum. Vorum við þá staddir utan undir honum. Dimmt var eins og í gluggalausu húsi, og sáum við ekkert fram fyrir okkur. Kom okkur saman um að best mundi vera að setja undan veðrinu út í Mjóafjörð, en allir vorum við ókunnir þeirri leið. Sýndist okkur nú horfa heldur óvænlega um ferðalag- ið, þar sem ekkert sá frá sér vegna fannkomu og myrkurs, því að nú tók óðum að skyggja og tungls naut ekki. Þama hagar svo til að bratti er ekki jafnhallandi, heldur smá hjall- ar og brattar brekkur á víxl. Vomm við því öðm hverju að steypast fram af þessum hjöllum og vildi þá ferðin verða fullmikil á þeim sem fremstur fór. Það kom í minn hlut og þá köll- uðu hinir glaðlyndu og góðu ferða- félagr til mín og spurðu hvort þeir mættu koma á eftir. Allt gekk þetta samt slysalaust og vomm við komnir niður að Firði klukkan sex um kvöldið. Sveinn Ólafsson, síðar alþingis- maður, bjó þá í Firði og tók okkur hið besta. Bauð okkur strax inn í hlýja stofu, lét draga af okkur vos- klæði og fá okkur þurr plögg að fara í. Sagði að við hefðum verið heppnir að setja okkur ekki niður með foss- unum í ánni, sem gætu verið mjög varasamir í svona snjólagi, ekki síst fyir ókunnuga. Eftir að við höfðum matast fór Sveinn að sýna okkur gamla Guð- brandarbiblíu, sem hann var nýbú- inn að láta skinna upp. Var það fýrsta útgáfa og fannst okkur mikið til um þennan kjörgrip. Út úr því spunnust miklar umræður um trú- mál og draugatrú eða draugagang. Að síðustu sveigðu þó heildsalamir talið að verslunarmálum. Áttum við bestu nótt í Firði og gmnar mig að ekkert hafi verið tekið fyrir næturgreiðann nema venjulegt þakklæti. Klukkan tíu morguninn eftir, kvöddum við þau hjón með mestu vinsemd og virðingu og héldum nú Krókadalsskarð til Seyðisfjarðar. Vor- um við komnir þangað klukkan tvö um daginn. Veður var ágætt, logn og léttskýjað, og færðin hafði mikið skánað, snjóinn rifið og barið aftur saman í harðfenni, sem mannhelt var víða á köflum. Bender var feginn mjög að vera nú kominn heim og kona hans þá ekki síður að hafa heimt hann heil- an á húfi úr þessari svaðilför. Höfð- um við þá verið nítján tíma á ferða- lagi frá Eskifirði. Nú var degi tekið að halla og vildi Bender ekki að ég legði svo seint af stað á fjallið, heldur gisti hjá sér næstu nótt, og þá ég það með þökk- um. Næsta dag (þriðjudag) lagði ég svo af stað frá Seyðisfirði klukkan sex um morguninn, fór Gagnheiði og Jökul og var kominn á Eskifjörð klukkan tvö um daginn, enda hafði ég nú ekki nema ein skíði, og færðin var sæmileg. Þó var talsverður þæf- ingur upp jökulinn að norðan. Annars hef ég farið þetta skemmst á sex klukkutímum að sumarlagi. Ekki man ég nú fyrir víst hve mik- ið ég fékk greitt fyrir þessa ferð, en hygg að það hafi verið 30 til 40 krónur. Þótti það síðamefnda góð borgun í þá daga. — Heima er bezt 283

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.