Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 50

Heima er bezt - 01.07.1999, Blaðsíða 50
Albert Isfeld Jr., A. H. Isfeld og kona hans, J. A. Isfeld, Eliza og Ó. G. Johnson, C. L. Isfeld, O. B. Isfeld, Leo Isfeld, Jerrold Isfeld, Marjie Isfeld, J. A. Isfeld, Nada Rose Isfeld (ungbarn), Elín Jóelsdóttir Isfeld. Árið 1910 var hann settur yfir landbúnað- armól Bahiafylkis, af brasilíska ráðuneytinu. Magnús samdi mörg rit og bækur og var rit- stjóri tímarita. I einni bóka hans eru þýðing- ar á portúgölsku úr Eddu, Hávamál og Völuspá. Hann kunni esperanto og mörg fleiri tungumál, alls 14 og samdi nýtt tungumál, sem hann nefndi Éska. Magnús keypti 2650 ferkílómetra land, sem hann ætlaði fyrir ís- lenskt landnám. Hann leitaði fyrir sér um kaup á farþegaskipi til þess að flytja íslending- ana til Brasilíu. Stofn- aði hann sósíalistaflokk sem hann nefndi Réttvísi (Orthologia). Hann hafði í hyggju að stofna íslenskt fyr- irmyndar samfélag á landi sínu og flytja alla íslendinga þangað. Magnús var tvíkvæntur, fyrri kona hans var frönsk og hét Reine Augustine Stella Bras. Þau áttu fjögur böm sem hétu: Clothilde Nanna, f. 1894; Heloisa Margrét, f.1895; Óðinn, f.1900 og Þór, f.1901. Seinni konan hét Stel, brasilísk kennslukona og áttu þau sex börn. Þau hétu: Sarathustra, f. 1906; Ari, f.1907; Baldur, f. 1909; Guðrún, f.1910; Freyja, f.1911. Magnús lést í Paranáguay 30. apríl 1921. Eftir lát Magnúsar flutti Stel með börnin til Curityba og hóf kennslu við stjómarskóla. Sá hún börnum sínum vel farborða. Jón Þorvaldsson (f.8/2 1844), frá Framnesi í Skagafirði. Hann veiktist af pestinni sem kom upp á skipinu í Hamborgarhöfn og lést á sjúkrahúsi í Hamborg. Eftirtaldir Brasilíufarar vom úr Þingeyjarsýslu: Guðmundur Guðmundsson, frá Halldórsstöðum, faðir Kristjáns ís- feld í Río de Janeiro. Guðmundur sigldi ásamt fjómm bömum sínum. Hann gerðist bóndi í nágrenni Curityba. Börnin voru: Magnús ísfeld 26 ára, María 22 ára, Ingibjörg 21 árs og Jensína Ágústa 18 ára. Auk þess var með Guð- mundi Kristín Sigurðardóttir 20 ára, f. á Hólum í Laxárdal 6. júlí 1853. Magnús ísfeld stundaði búskap í nokkur ár í félagi við föður sinn. Hann kvæntist 1877, Elínu Jóelsdótt- ur, Jónssonar. Árið 1892 hóf Magn- ús framleiðslu múrsteina og tígul- steina, sem hann stundaði af mikl- um krafti og hafði marga menn í vinnu. Stundaði hann þessa fram- leiðslu í 12 ár jafnframt búskapn- um. Magnús var efnaðastur íslend- inganna í Brasilíu. Árið 1904 flutti hann með alla fjölskylduna til Vatnabyggða í Saskatchewanfylki í Kanada. Þau áttu tíu börn: Christjano Julho, f.27/7 1878, d.20/1 1919; Christina Lilia, f.7/8 1881; Cecelia Louisa, f.21/12 1883; Jóel Augusto, f.17/4 1886; Oscar Brigham, f. 2/11 1889; Benedikta Von, f. 30/3 1891, d.27/3 1900; Victor Emmanuel, f. 2/7 1894, d.18/1 1919; Alberto Hjörtur, f. 30/11 1898; Sigrina Anna, f. 26/7 1900, d.19/1 1919 og Elisa Margarida, f. 8/7 1903. Magnús Guðmundsson ísfeld lést 19/1 1919, úr spönsku veikinni, ásamt þremur bömum sínum. María ísfeld giftist dönskum manni, Jörgen að nafni. Þau bjuggu í bænum Lappa, sem var lagður í eyði í uppreisninni 1893 og spurðist ekki til þeirra eftir það. Ingibjörg ísfeld giftist Peter Rasmussen. Hún dó 1883 frá ung- um dætrum, Önnu og Ágústu, sem báðar giftust brasilískum mönnum. Jensína Ágústa ísfeld giftist manni af þýskum aðalsættum. Börn þeirra voru Lydia og Margarida. Jensína Bitting rak í mörg ár hótel, sem hún nefndi Pensao ísland, við Rua do Catetto í Rio de Janeiro. Lydia ísfeld giftist babtistapresti og átti með honum einn son og þrjár dætur. Lydia giftist síðan Car- los Bitting, þýskum verkfræðingi og átti með honum soninn Carlos og dótturina Olympiu, sem giftist portúgala. Margarida ísfeld var óqift árið 1923. 290 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.