Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1999, Side 65

Heima er bezt - 01.07.1999, Side 65
Að sjálfsögðu var ég látinn hafa gott nesti til ferðarinnar og fara með eitthvert góðgæti í þakkarskyni til systur minnar og mágs. Ég man til dæmis glöggt eftir því að þar á meðal voru tvö hangikjötslæri. Ferðin var þannig skipulögð að ég skyldi vera tvo daga og gista hjá systur minni um nóttina. Ákveðin fyrirmæli voru um það að ég ferð- aðist í björtu báða dagana. Ég mætti því alls ekki fara frá Kópa- skeri seinna en um hádegi, til þess að komast í björtu yfir Brunná. Eins og nærri má geta fór ég ná- kvæmlega eftir þessum fyrirmælum. Og til þess að gera langa sögu stutta tek ég hér aðeins fram, að ferðin gekk eftir bestu áætlun og varð mér, af mörgum ástæðum til mikillar ánægju, sem ég hugsaði oft um og minntist lengi. Og þá var þetta töfratæki hins nýja tíma, þessi góða gjöf systur minnar og mágs, komin til síns heima og beið þess að gegna því einstaka og undursamlega hlut- verki, sem því var ætlað. Skömmu seinna var svo útvarps- stönginni og loftnetinu komið fyrir, eins og best var talið við eiga og leiðslunni frá loftnetinu stungið gegnum þröngt gat, sem borað hafði verið í gegnum einn karminn á öðrum baðstofuglugganum. En í baðstofunni höfðu foreldrar mínir ákveðið að koma tækinu fyrir, enda var hún langstærsta herbergið á heimilinu, raunar stór stofa. Þetta var að sjálfsögðu gert að vel athuguðu máli, því að strax var talið víst, að oft mundu margir hlusta á dagskrárefni útvarpsins, enda varð sú raunin á. Faðir minn, sem var hinn mesti völundur í höndum, bæði á tré og jám, átti allan veg og vanda að upp- setningu tækisins, eða réttara sagt tækjanna. Man ég glöggt að hann sagði að þetta væri vandalaust, það lægi alveg ljóst fyrir. Leiðeiningar munu líka hafa fylgt tækinu. Var þá allt tilbúið hjá okkur að njóta stundarinnar stóm þegar ríkis- útvarpið sendi frá sér fyrstu dagskrá sína. Rétt er og skylt að taka hér fram, að svo sem nærri má geta höfðu verið gerðar ákveðnar og markviss- ar æfingatilraunir með útvarpsrekst- ur um nokkurn tíma, áður en reglu- leg og vel undirbúin dagskrá hófst. Þar sem þær tilraunir höfðu tekist vel, var ákveðið, eins og fyrr getur, að hefja reglulegar útsendingar með ákveðinni og auglýstri dagskrá frá hinni nýju og öflugu útvarpsstöð á Vatnsendahæð við Reykjavík, sunnudaginn 21. desember, klukk- an 11.00 árdegis. Ég minnist ekki að reynt hafi verið heima að ná þessum æfingatilraun- um, en trúlega hafa þó einhverjir áhugasamir sveitungar mínir gert það, þótt ekki færu af því neinar sögur, sem ég man. Heima beindist hugur okkar að því einu að hafa allt í lagi, hafa allt undirbúið þegar reglulegt útvarp tæki fyrst til starfa á íslandi. Dagskrá hafði þegar verið aug- lýst, fýrsta reglulega dagskráin, og var hún þannig: Kl. 11.00: Messa í Dómkirkjunni (séra Friðrik Hallgrímsson). Kl. 14.00: Messa í Fríkirkjunni (séra Árni Sigurðsson). Kl. 16.10: Barnasöngur (Marta Kalman). Kl. 19.25: Grammófónn. Kl. 19.30: Veðurfregnir. Kl. 19.40: Upplestur (Jón Pálsson). Kl. 20.00: Tímamerki. Organleikur (Páll íslólfsson). Kl. 20.30: Erindi: Útvarpið og bækurnar (Sigurður Nordal). Kl. 20.50: Ýmislegt. Kl. 21.00: Fréttir. Kl. 21.10: Hljóðfærasláttur (Þórarinn Guðmundsson, fiðla, Emil Thoroddsen, slagharpa). Leikin verða íslensk þjóðlög eftir Sveinbjöm Sveinbjömsson. Og svo rann þá stóra stundin upp. Heimilisfólkið safnaðist saman í baðstofunni okkar, ásamt nokkmm gestum frá tveimur nágrannaheim- ilum, sem höfðu ekki enn haft tök á að fá sér tæki. Eins og vænta mátti biðu allir stundarinnar með mikilli eftirvænt- ingu og vonuðust til að bæði út- sending og móttaka heppnaðist vel. Og sú von brást ekki heldur. Hvort tveggja tókst eftir bestu vonum, var alveg óaðfinnanlegt. Seinna frétti ég að gjöfin góða, útvarpstækið, sem systir mín og mágur gáfu foreldrum mínum, hefði ekki heldur verið val- ið af verri endanum, það væri af bestu fáanlegri gerð, enda entist það ámm saman. Ég held ég megi fullyrða að lang- flestir viðstaddra hafi hlustað á þessa fýrstu, sögulegu dagskrá allt til enda, hafi ekki getað hugsað sér að missa af neinu. Þetta var svo stórmerkur viðburður, svo ógleym- anlegur tímamótaviðburður, þegar íslensk alþýða, út um allar sveitir landsins, átti daglega héðan í frá, að geta hlustað á tal og tóna, oft fróðleg erindi og úrvals tónlist, sem barst til okkar gegnum loftið með leifturhraða úr órafjarlægð. Um þetta ræddum við milli þátta, undrandi og hrifin, og vorum sam- mála um að þetta væri alveg eins og í ævintýri, að ævintýrið væri raunverulega komið til okkar. Að sjálfsögðu vom eitthvað skipt- ar skoðanir um dagskrána og um hana mikið rætt, en allir voru sam- mála um að hún hefði verið ágæt. Ég man glöggt að ég hreifst mest af tvennu: söngnum og tónlistinni og erindi meistara Nordals, og margir vom mér sammála um það. Ég mætti kannski skjóta hér inn, að áhugi minn vaknaði snemma á söng og tólist. Vafalaust hefur það verið vegna þess að foreldrar mínir og margir ættingjar höfðu mikinn áhuga á þeim málum, vom söng- menn góðir og léku margir á hljóð- færi. Það var því daglega sungið meira og minna, og einhver lék þá jafnan undir á orgel. Fyrstu æskum- inningar mínar em ekki síst tengdar tónlist og söng. Og enginn vafl er á því að þessi áhrif frá uppvaxtarár- unum urðu til þess að ég tók söng- kennarapróf með almennu kenn- Heima er bezt 305

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.