Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Side 4

Heima er bezt - 01.11.2000, Side 4
•Kli Ágætu lesendur. Á milli manns, hests og hunds hangir leyniþráður, var löngum sagt hér áður fyrr. Og áreiðanlega hefur það verið orð að sönnu því um aldaraðir var þetta nær órjúf- anleg þrenning. Væri einhvers staðar maður á ferð á hesti, mátti telja nær öruggt að honum fylgdi hundur hans. Það er svo með dýrin, ekki síður en mannfólkið, að þau binda gjarnan tryggð við húsbændur sína, og á það ekki hvað síst við um hundana. Ýmsar sögur eru til um tryggð þeirra við húsbændur sína. Einna þekktust slíkra hér á landi um tryggð og vitsmuni hunds, hygg ég að sé sagan um hundinn sem hafði það fyrir sið að fylgja húsbónda sínum hvert fót- mál og ekki síst þegar hann þurfti að bregða sér af bæ. Nú er það eitthvert sinn að bóndi bregður sér lengri leið en lokar hund sinn inni, því ekki vildi hann hafa hann með sér í þessa ferð, einhverra hluta vegna. Seppi var ekki ánægður með þetta, eins og vænta má, og að einhverjum tíma liðnum náði hann að sleppa út og skipti það engum togum að hann lagði þegar af stað í humátt á eftir húsbónda sínum. Mun hann hafa haldið rétta leið og kom heim á bæ þar sem bóndi hafði haft viðdvöl á ferð sinni. Ekki kann ég sögu þessa það nákvæmlega að geta sagt af hvers konar völdum, en á þessum bæ lét hann staðar numið og hóf að bíða húsbónda síns, sem mun reyndar ekki hafa komið þarna við á bakaleiðinni. Að einhverjum tíma liðnum var brugðið á það ráð, þegar séð varð að seppi hugsaði sér ekki til hreyfings, að hafa samband við húsbónda hans símleiðis. Þegar hann fregnaði hvers kyns var, bað hann um að fá að tala við hundinn sinn i gegnum símann. Var það gert og mun ekki hafa verið annað séð en að hundurinn hlustaði á það sem sagt var, þegar tólið var lagt að eyra hans. Og nú brá svo við, eftir þetta símtal, að hann taldi sér ekki lengur til setunnar boðið, því hann mun tafarlaust hafa tekið strikið burt frá bænum til síns heima, þar sem væntanlega hafa orðið fagnaðarfundir með honum og húsbónda hans. Hvað þeim fór á milli í símanum fylgir ekki sögunni. Ekki er þetta nú nákvæm frásögn af hátterni þessa ágæta hunds, en í stórum dráttum mun þetta hafa átt sér stað með þessum hætti. Ýmsar útgáfur eru reyndar til af þessari sögu og hún jafnvel verið heimfærð upp á fleiri en einn hund og húsbónda. En hvað um það, hún er að mörgu leyti merkileg og nokkuð gott dæmi um vitsmuni sem dýrin sýna oft af sér. Fleiri slíkar sögur eru til af ratvísi og skynsemi hunda, t.d. hundi nokkrum í Bandaríkjunum, sem tókst að finna húsbónda sinn þó um langan veg og ókunnugt svæði væri að fara. Eigandi hans, ungur maður, bjó í úthverfi Los Angeles og varð ekki annað séð en að hundur hans hefði haldið rakleiðis 15 kílómetra leið í gegnum sér alókunnugan borgarhluta til þess að finna eiganda sinn. Atvikið átti sér stað eftir að eigandinn hafði flutt frá for- eldrum sínum og tekið á leigu bílskúr, sem hann útbjó sér íbúð í. Hundurinn hans, sem hann skildi eftir, hafði aldrei ferðast lengra frá heimili sínu en rúman kílómetra eða svo, vegna þess að hann varð alltaf bílveikur ef reynt var að aka með hann í bíl. Mörgum vikum eftir að eigandi hans flutti, tókst hundinum að sleppa út úr geymslu sinni í bakgarðinum og hverfa með því sama. Nokkru síðar, þegar eigandinn og félagi hans voru eitt sinn á leið út úr þessari bráðabirgða íbúó sinni, sáu þeir hundinn kominn þar fyrir utan, og var hann að þefa af húsinu. Sú staðreynd að hann skuli hafa birst þarna innan eins dags frá því að hann hvarf að heiman frá sér, gefur sterklega til kynna að hann hafi beinlínis verið að leita húsbónda síns, en ekki bara rambað á rétta staðinn fyrir einhverja tilviljun. Og svona sögur eru sjálfsagt margar fleiri til, einnig af öðrum dýrum en hundum. En það er alltaf gaman að velta fyrir sér greind og athyglisgáfu hundanna, svo ekki sé nú minnst á þefskynjunarhæfileika þeirra, sem svo margoft hefur sannast, t.d. í björgunaraðgerðum. Allt eru þetta eiginleikar sem oft á tíðum taka langt fram því sem maðurinn er fær um á þessum sviðum og hafa þessi dýr því oft orðið honum til gagns og fram- dráttar í lífsbaráttunni, ekki hvað síst fyrr á öldum. Er þá nema von að “leyniþráður” hafi myndast á milli þessara ferðafélaga hér á jörð? Með bestu kveðjum, Guðjón Baldvinsson. 396 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.