Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Síða 6

Heima er bezt - 01.11.2000, Síða 6
þessu af mikilli ljúímennsku en hafði þó orð á að ekki þætti sér líklegt að til sín gæti ég sótt neitt það sem bita- stætt yrði fyrir alþjóð til lesturs. Eg taldi óhætt að láta á það reyna og leyfi mér að birta hér árangur af spjalli sem við áttum yfir kaffibolla eftirmiðdag nokkurn á heimili mínu fyrir skemmstu. Og upphaf samtalsins var að sjálfsögðu hin afar hefð- bundna og óskáldlega spurning um nafn viðmælandans, uppruna og foreldra: Ég er fæddur á ísafirði 4. júlí 1924. Foreldrar mínir voru Magnús Guðmundsson, af svonefndri Pálsætt af Strönd- um, fæddur á Kaldbak í Kaldraneshreppi og Karítas Skarphéðinsdóttir, fædd í Æðey í Snæfjallahrcppi. Um Pálsætt hafa verið gefnar út þrjár bækur í samantekt Pálínu, yngstu systur minnar, sem lagt hefur mikla vinnu í að leita uppi niðja þessara forfeðra okkar. Faðir minn vann lengst af sem húsasmiður, en skorti þó öll réttindi í þeirri iðn. Hann var mikill hagleiksmaður að upplagi og lagði á margt gjörva hönd. Einhverra réttinda til viðgerða á bátavélum hafði hann aflað sér og var oft sóttur til þess starfa ef mikið lá við. Þá var hann einnig góður vefari og vann nokkuð við það framan af ævinni. Söng- hneigður var hann og hafði góða söngrödd, enda forsöngv- ari við kirkju um langt skeið. Einhverja tilsögn hafði hann fengið í söng og tónfræði hjá barnakennara sem hann var samtíða vetrarpart á Stað í Steingrímsfirði. Þetta glæddi músíkáhugann og varð m.a. til þess að hann tók sér eitt sinn fyrir hendur að smíða langspil, en þótt það hljóðfæri sé í dag lítið þekkt var það um langt skeið algengasta hljóðfærið í hinum dreifðu byggðum þessa lands, þar sem húsakostur var þröngur og íjármunir til hljóðfærakaupa lágu ekki á lausu. Hann hafði verið giftur áður og átti fjög- ur böm með fyrri konu sinni, sem hann missti skömmu eftir fæðingu yngsta barnsins. Leystist heimilið þá upp og bömin voru send til fósturs. Öll urðu þessi systkini mikið manndómsfólk og nokkrir afkomendur þeirra þjóðkunnar persónur. Þrír synir sem allir stunduðu sjósókn og útgerð og ein dóttir, sem lengst af var búsett á Flateyri. Elsti son- urinn Sófus bjó um langt skeið á Drangsnesi og stundaði þar jöfnum höndum sjósókn og búskap. Þorvaldur stund- aði sjóinn lengst af ævinnar og munu flestir Islendingar sem komnir em yfir miðjan aldur kannast við hann af mynd sem víða hefur birst í blöðum og tímaritum um ára- tuga skeið og hefur verið notuð sem tákn fyrir hinn ís- lenska sjómann. Sonur Þorvaldar er hinn kunni sprett- hlaupari Finnbjörn Þorvaldsson, sem var í hópi þekktustu íþróttamanna okkar um miðja tuttugustu öldina. Yngsti sonurinn, Óskar, gerði út eigin bát frá ísafirði og fórst með allri áhöfn í stórviðri að vetri til. Sonur hans Þórður settist síðan að á Akranesi og hóf þar rekstur útgerðar, m.a. tog- ara sem bar föðumafn hans, Óskar Magnússon, og var þekkt aflaskip um áraraðir Síðustu starfsár föður míns stundaði hann mest viðgerðir á smærri hlutum og hafði þá vinnuaðstöðu í skúr sem hann átti í grennd við bamaskólann á ísafirði. Margir komu til Karítas móðir mín og faðir hennar Skarphéðinn Elíasson. hans með saumavélar sem höfðu bilað og hann hafði kom- ið sér upp einhverju af varahlutum svo þetta spurðist víða og eftirspunin eftir þessari þjónustu óx með hverju ári. Þess voru jafnvel mörg dæmi að honum væru sendar saumavélar til viðgerðar alla leið frá Reykjavík, sem sýnir það að þess konar þjónusta hefur varla verið þar í boði, nema ástæðan hafi verið sú að hann hafi verið talinn öðr- um færari á þessu sviði. En auðvitað gaf þetta dútl lítið í aðra hönd. Þegar foreldrar nn'nir giftust var móðir mín langt innan við tvítugt og hann vel tuttugu árum eldri. Þetta var erfið lífsbarátta því þau eignuðust átta börn. Húsnæðið var auó- vitað orðið afar þröngt og hann farinn að slá af með vinnu- þrek vegna aldurs. Svo gekk þetta ekki lengur upp og þau skildu samvistum. Fluttist hún þá með okkur yngstu börn- in í gamlan timburhjall, sem hafði verið fyrsta heimili fjöl- skyldunnar á ísafirði. Hún stundaði alla þá vinnu sem bauðst. Mest var það fiskvinna auk sláturhúsvinnu á haustin. Móðir mín starfaði mikið að baráttumálum verkalýðsins og tók virkan þátt í þeirri pólitísku orrahrið sem ísafjarðar- kaupstaður var frægur fyrir á þeim árum. Hún skipaði sér á vinstri vænginn og beitti sér ásamt félögum sínum þar fyrir framboði til sveitarstjórnar á vegum Kommúnistaflokks- 398 Heima er hezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.