Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Side 21

Heima er bezt - 01.11.2000, Side 21
þrátt fyrir engan Múlaveg né göng í gegnum það mikla fjall sem nú er orðið að veruleika. Aðeins vegurinn yfir Lágheiði til Fljóta í Skagafirði var opinn yfir sumarmánuðina með tilurð hans frá árinu 1948. Flóabáturinn Drangur (I) kom tvisvar til ijórum sinnum í viku og var sannkölluð líftaug byggðarlagsins. Strandferðaskipið Skjaldbreið kom einu sinni til tvisvar í mánuði og önn- ur flutningaskip eins og “fossamir” og “fellin,” komu sjaldnar. Um þetta leyti (1950) voru íbúar Ólafsfjarðar um 900 talsins. Sex verslanir voru í plássinu, tvö frysti- hús, tvö síldarplön og nokkrir salt- fiskverkendur. Þá var trésmíðaverk- stæði, vélaverkstæði, skósmíðastofa, rafverkstæði, málarastofa, bakarí, mjólkurbúð, söðlasmiður og jafnvel byssusmiður. Ég hafði strax óskaplega garnan af því að vera fluttur í kaupstað og það var raunar merkilegt livað jafn- aldrar mínir í Ólafsfirði tóku þessum sveitastrák úr Fljótum vel og hve fljótt ég samlagaðist mínum aldurshópi á staðnum. Aðalgata 11-b, Brautarhóll eða “Sóleyjarhúsið,” eins og það var oftast kallað eftir frænku minni, sem þar hafði búið við rausn með fjölskyldu sinni í meira en aldarfjórðung, var heimili mitt árin sem ég var búsettur í Ólafsfirði og litla súðarherbergið sem var verustaður minn á fimmta ár, sneri glugganum fram yfir ljörðinn, eins og sjá má á myndinni í upphafi þessa greinarkorns. Þetta herbergi geymdi mínar verald- legu eigur á þessum árum; dívan, rúmfataskáp, bókahillu og síðast en ekki síst grammófón og nokkurt plötusafn. Úr herbergisglugganum gat ég einnig fylgst með ljósa-, síma- og aug- lýsingasturninum góða við Sveinshús- ið (Aðalgötu 8), sem einnig var stund- um kallaður “Völlustaurinn.” Þama safnaðist unglingahópurinn saman þegar kvölda tók og lagt var á ráðin um hvað gera skyldi hverju sinni. Sóleyjarhúsið stóð í röð þriggja húsa sem öll urðu að víkja við breikk- un Aðalgötunnar um 1960. Olafsfíörður um 1950 Kapproðrarbatur og hluti veiðiflota Olafsfirðinga í júní '53. Sigríóur Hafdís Jóhannsdóttir (systa lœknisins) fór með hlutverk Fjallkon- unnar í Olafsfirði 17.júní 1954. Strax eftir áramótin 1950/51 innrit- aðist ég í unglingaskóla staðarins, þannig að allir vetur mínir í Ólafsfirði voru jafnframt skóladagar. Við skólann störfuðu úrvals kennar- Einn stœrsti farþegabíll landsins kom til Olafsfjarðar með reykvíska kepp- endur á sundmeistaramót Islands, sem haldið var þar sumarið 1954. ar undir stjórn Sigursteins Magnús- sonar skólastjóra. Má þar nefna Björn Stefánsson, Ragnar Þorsteinsson, Tómas Einarsson, Ingimar Sveinsson, Birnu Friðgeirsdóttur, og síðast en ekki síst, Sigurð Guðmundsson íþróttafrömuð og núverandi farar- stjóra Heimsferða, en hann var drif- fjöðrin í íþrótta- og félagslífi Ólafs- firðinga á þessum árum. Ólafsfjörður var sannkallaður ævin- týraheimur í mínum huga, þó að nokkurt atvinnuleysi væri viðvarandi á þessum tíma, er olli fólksfækkun urn hríð. Þrátt fyrir það komust íbú- Heima er bezt 41 3

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.