Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Side 22

Heima er bezt - 01.11.2000, Side 22
arnir sæmilega af í þá daga enda minni kröfiir um lífsþægindi en nú tíðkast. Margir höfðu skepnur til búdrýginda; kýr, kindur, svín og hænsni. Sérstakt hverfi gripahúsa var vestan við kaupstaðinn og gekk undir nafninu fjósahverfið. Á sumrin var staðurinn því í aðra röndina einnig líkur rólegu sveita- þorpi. Kvölds og morgna sáust kýr silast eftir götunum án nokkurs tillits til umferðar fólks og farartækja. Margan sumardaginn mátti einnig sjá fólk keppast við að heyja túnblettina sína suður með Vatninu. Heyið var síðan bundið og flutt í hlöður gripahverfisins. Með aukinni velmegun í lok sjötta áratugarins lagðist þessi landbúskapur smám saman af. Annað hverfi var í norðanverð- um bænum. Það var mikil þyrp- ing “beituskúra” upp frá bryggj- unni sem trillukarlamir áttu. í því hverfi voru alls kyns rang- halar, hið mesta völundarhús og kærkominn leikstaður okkar strákanna. Vor, sumar og haust ræddu menn um fátt annað í Ólafs- firði en hvernig fiskaðist þegar róið var. Eldsnemma á hverjum morgni þegar sjór var sóttur, fóru karlar og konur út í skúrana til að beita línuna, því það varð að vera búið áður en bát- amir kæmu að. Þá var nóg að gera og mikill hamagangur við að landa aflan- um upp úr bátunum, aðgerð og söltun og bjóðin urðu að vera tilbúin fyrir næsta róður. Þannig gekk mannlífið í Ólafsfirði fyrir hálfri öld. Saga sjávarplássanna á Islandi frá aldamótum og fram um miðbik 20. aldar, þegar þau voru flest að mótast og festast í sessi, er vissulega kapítuli út af fyrir sig í þjóðarsögunni og er Ólafsljörður engin undantekning frá því. Allt framundir 1960 leitaði fjöldi vinnufærra manna til Suðurlands á vertíð yfir vetrarmánuðina frá janúar til maí ár hvert, en eftir að varanleg höfn varð til í Ólafsfirði breyttist þetta og vertíðarferðimar suður lögðust af. Eftir því seni líða tók á 20. öldina hafa orðið stórstígar breytingar og Gamla Hvassafellið losar kol í Ólafs- firði haustið 1952. Kolum mokað inn í gamla sláturhúsið við Strandgötu. Mennirnir eru, talið frá vinstri: Vigfús Skíðdal, síðar bygginga- meistari, sem öðrum fremur færði Ólafsfjarðarkaupstað til nútímahorfs í húsakosti, Jakob Einarsson og loks Andrés Kristinsson, síðarþekktur hrossabóndi á Kvíabekk. Eitt aflitlu handverksstœðunum í Ólafsfirði. Sæmundur Jónsson rokka- og söðlasmiður að störfum. Gatnamót Aðalgötu og Kirkjuvegar 1954. Þarna má þekkja málarastofu Sigurðar Hallssonar, Syðstabæ, Leyn- ing, Sveinshúsið, Villahúsið, Sóleyjar- húsið og Stjánahúsið. framfarir í Ólafsfirði. Þar reis upp mikill fiskiðnaður og útgerð jókst í samræmi við það. Ný viðhorf og straumar bárust þangað frá umheim- inum með nýrri kynslóð og mannlífs- bragurinn sem þar var í heiðrum hafð- ur fyrir hálfri öld, heyrir nú sögunni til. Hins vegar virðist nýtt mál í upp- 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.