Heima er bezt


Heima er bezt - 01.11.2000, Síða 27

Heima er bezt - 01.11.2000, Síða 27
Landnemarnir á Dröngum og Grænlandi Þorvaldur Asvaldsson og Eiríkur rauði sonur hans afJaðr- inum sunnan Stafangurs í Noregi komu síðla landnámsald- ar út til Islands. Varð þá ekki valið úr til byggðar og ból- festu, en hafa ber í huga, að mikið hlýviðrisskeið var hér á Norðurhafseyjunum, Islandi og Grœnlandi, frá vel hálfnaðri 9. öld og fram yfir þúsaldamót. Hefur þá verið gras gróandi miklu meir en nú á Dröngum og í Skjaldabjarnarvík norður undir Geirólfsgnúpi á Ströndum. Eiríkur Þorvaldsson fekk Þjóðhildar Jörundsdóttur á Stóra-Vatnshorni í Hauka- dal. Ólíklegt er annað en hún færi norður til hans. Elztur sona þeirra var Leifur, nefndur við mann- dómsaldur hinn heppni, en viður- nefnið alkunnugt vegna þeirrar gæfu hans að bjargaði mönnum af sökkvandi skipi — eða skeri við Óbyggð á Grænlandi,— eins og Austurströndin var nefnd í fornum íslenzkum frásögum. Agreiningur um fæðingarstað Leifs Eiríkssonar er ekki djúpfund- inn. Sjálfsagt eru það Drangar, en barnsskónum hefur hann slitið í Haukadal, þar sem faðir hans reisti skála og átti skammtímavist, þegar óvel farnaðist á Norðurströndum, síðar einnig nefndir Eiríksstaðir, þeg- ar hann átti vist og veru í Breiða- fjarðareyjum. Litla isöld Austurbyggð nær mannlaus. Vesturbyggð leggst í eyði. ^Eiríkur rauði finnur Grænland 2000 Kaldara , Hlýrra en nú 1800 1600 1400 h 1200 1000 h 800 600 A.D. Línurityfir hitamunsþróunina á Grœnlandi í 1400 ár, byggð á rann- sókn borkjarna úr jöklinum 1985. Heimild: Qilakitsog. Þjóðhildur kristna í þúsaldar-minningu landafunda Leifs Eiríkssonar, langt sunnan og vestan Grænlands, getur þess sjaldn- OF ■THÉ' fÍO,PV GF 'S-óEL'AHO ON THE 'QÍ^ IHOóSAWDTM ANNíVEP-SARY OF JKF ALTHIHó Leifur Eiríksson — sonur Is- lands, sem fann Vínland. Styttan er gjöf Bandaríkjamanna á þús- und ára afmœli Alþingis 1930. ar, að hann var kristniboði Ólafs Noregskonungs, sem varð svo ágengt, að íslendingar á Grænlandi urðu kristið þjóðfélag að kalla fyrir nær þúsund árum. Skálann, sem reistur hefur verið á s.n. Eiríksstöð- um í landi Stóra-Vatnshorns í nafni Leifs Eiríkssonar og landafunda hans, hins mikla sægarps og sigl- ingamanns, hefði gjarna helzt mátt binda nafni móður hans. Þjóðhildur átti hrakningssama ævi með manni sinum, unz þau fóru til Grænlands 982 eða 983 og námu hið fríða Brattahlíðarland við Eiriksfjörð 3 árum síðar, er Eiríkur kom aftur vest- ur þangað með á 3ja hundrað land- námsmanna af íslandi. Þar virðist henni hafa tekizt að halda vígfúsa, norska manninum sínum í skefjum, enda bundu drengirnir þeirra höndur hans, kristnir eins og móðirin. - Kunnara er en frá þurfi að segja, að Heima er bezt 419

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.