Heima er bezt - 01.11.2000, Page 31
Sumarið 1875 sat
Tryggvi Gunnarsson
ásamt nokkrum helstu
bændum af Héraði að
morgunverði hjá Sigurði
Jónssyni faktor í Gránu
á Seyðisfirði. Barst þeim
þá sú sorgarfrétt að kona
úr Hjaltastaðaþinghá
hefði drukknað í lœk á
Vestalsheiði. Lœkur þessi
var að jafnaði vart nema
í hófskegg á hesti, en
glaða skólskin var þenn-
an júlímorgun, mikill hiti
og allar ár ófœrar vegna
leysinga.
Eyvindarárbrúin, gefin af
Tryggva Gunnarssyni,
reist 1880.
Rétt neðan við vaðið
hafði Tryggvi séð að
lækurinn rann á milli
klappa og tíu álna bil á
milli. Var þar auðvelt að brúa.
Gestirnir fóru að fárast yfir
slysinu en Tryggvi brá þeim um
amlóðahátt, að vera ekki búnir að
brúa þessa sprænu. Ekki þyrfti
annað en leggja tvö tólf álna tré á
milli klappanna, til þess að bera
uppi brúna.
Héraðsmenn báru við féleysi
en Tryggvi sagði að féleysi væri
ekki um að kenna, þeir myndu
eyða meira í brennivín áður en
þeir færu heim úr kaupstaðnum
en brúin myndi kosta.
Lauk þessu tali með því að
Tryggvi bauðst til þess að leggja
til efni í brúna ef Héraðsmenn
önnuðust flutning þess og smíðina. Um haustið fór
Tryggvi til Kaupmannahafnar að vanda.
Barst honum þá bréf frá Sigurði Gunnarssyni presti á
Hallormsstað um það hve hættuleg Eyvindaráin sé.
“Þar er 33 álna bil á milli kletta og mun þurfa 36 álna
löng brúartré yfir ána. Fyrst þú varst svo höfðinglegur að
leggja til brúarefnið, ef við sæjum um verkið, myndum
við taka með þökkum brúarefni frá þér yfir Eyvindará.”
Tryggvi hafði lofað efni í mun minni brú á lækinn á
Vestalsheiði, en ekki á Eyvind-
ará.
Nú þarf að hverfa aftur í tím-
ann. Á Stóru-Tjörnum hafði
stofuloft sigið vegna of grannra
loftbita og leitaði Þorlákur bóndi
til Tryggva um úrlausn. Hann
leysti vandann með því að tengja
bitana upp í sperrurnar og fá
þannig burðinn að ofan en ekki
með stoðum að neðan. í þessari
lausn sá hann einnig möguleika
til brúargerðar.
Við lestur bréfsins frá Sigurði
riijaðist upp fyrir Tryggva at-
burðurinn frá Stóru-Tjörnum
rúmum 20 árum áður og teiknaði
hann fríhendis mynd af brú, líka
sperrunum og bitunum þar.
Morguninn eftir átti Klenz
timburmeistari erindi við
Tryggva. Sá hann brúarteikning-
una á borðinu og spurði hvað
þetta væri. Sagði Tryggvi honum að þetta væri teikning
af brú. Bað Klenz Tryggva að lána sér teikninguna, hann
langaði að sýna hana verkfræðingi sem hann þekkti.
Verkfræðingnum leist vel á hugmyndina. Tryggvi bað
Klenz um verðtilboð í 35 álna langa brú með þessu lagi.
Taldi hann hægt að smíða hana fyrir 1650 krónur og tók
Tryggvi tilboðinu.
Þegar smíðinni var lokið fór Tryggvi að skoða brúna.
Leist honum vel á smíðina, en öll trén voru 11 þumlungar
á kant og 12 til 15 álnir á lengd. Svo mikinn þunga gætu
Einar Vilhjálmsson:
Fyrsta
brúin
á Eyvind-
ará
reist 1880
Heima er bezt 423