Æskan - 01.12.1940, Page 3
JóLIN
Eftir
séra Árna Sigurðsson.
,,VeriÖ óhrœddir . . . eg boða yður mikinn
fögnuð . . . ijður er i dag frelsari fivddur.u
Alltaf éru blessuð jólin eins. Hátíð Ijósanna og
gleðinnar öllum hátíðum fremur. Mesta tilhlökk-
unarefni barnanna. Breyta hinum fullorðnu í börn
nm stund.
Þegar jólin koma til okkar núna, grúfir myrkur
Ufir þjóðunum, myrkur ófriðar, sorgar og háska.
Margir eru nú áhyggjufullir, kvíða komandi degi,
óttast einhver ósköp, sem á næstunni geta dunið
Vfir. Sérstaklega eru þeir hræddir og kvíðandi, sem
trúlausir eru, sem engan Guð og frelsara eiga.
En við erum kristin, trúum á Guð, og vitum að
hann elskaði heiminn svo, að hann gaf honum son
sinn Jesúm Krist, til þess arí frelsa mennina frá
synd og fræða þá um hið góða, við viljum engu
kvíða, ekkert óttast, þótt tímarnir séu nú vondir.
Við viljum hlusta á það, sem jólaengillinn boðar
okkur öltum. IJann segir við liina hræddu og
kvíðafullu: „Verið óhræddir.“ Við hina sorgbitnu:
„Eg boða yður mikinn fögnuð.“ Við þá, sem finna
og sjá, hve vondir og syndugir og villtir mennirnir
eru: „Yður er í dag frelsari fæddur." Frelsari, sem
segir við hrædda menn, sorgbitna mcnn, synduga
menn: „Sá, sem fylgir mér, mun ekki ganga í
myrkri, heldur hafa Ijós lífsins.“ Frá Ijósi hans fá
jólin, fæðingarhátíð hans, birtu sina. Á Ijós hans
eiga öll jólaljósin, sem við kveikjum, að minna
okkur.
Kæru, íslenslcu börn! Fagnið jólum. Fagnið komu
123