Æskan - 01.09.1969, Side 18
Ti Teð sigri sínum yfir Kerchak apakóngi varð Tarzan
æðstráðandi í flokki sínum og tók nú að stjórna
þessum villtu dýrum eftir því, sem hann taldi hyggilegast
hverju sinni.
Hann vissi, að gnótt fæðu var að finna á ökrum svert-
ingjanna og íór því oft þangað að næturþeli. — Hann
bannaði þó félögum sínum að æða um allan akurinn
og troða hann niður, eins og þeir mundu hafa gert, ef
þeir væru látnir sjálfráðir. Þarna kom til skjalanna vit
mannsins.
Tarzan vissi, að þeir svörtu mundu gefast upp við
akuryrkjuna ef mikill ágangur yrði á sáðlandinu, og einn-
ig ástæðulaust að spilla ökrunum að óþörfu. Svertingjarnir
voru raunar sárreiðir yfir skemmdunum á sáðlandi sínu,
en vonuðu þó, að þeim mundi linna einhvern tíma.
7
apabróðir
Oft þurfti Tarzan að ná sér í örvar í þorpinu og not-
aði sér þá næturmyrkrið til að læðast inn í einhvern kof-
ann. Þeim svörtu stóð stuggur af þessu og til þess að
blíðka þennan óþekkta anda settu þeir matarforða undir
tré eitt utarlega í þorpinu. Tarzan komst fljótlega að
þessu og tók að sækja þennan mat og gaf þá oft öpuntinr
það af honum, sem hann hafði ekki lyst á.
Kóngur sveringjanna — Monga — var alveg dolfall-
inn yfir þessu. Aldrei hafði hann vitað til þess, að skógar-
andar beinlínis kæmu og sæktu fórnir þær, sem bornar
voru út til að bæta skap þeirra. — Monga var því að hugsa
um að taka sig upp með flokk sinn og flytja sig langt
inn í skóginn, svo langt að þeir kæmust út fyrir áhrifa-
svæði þessa magnaða skógaranda, sem þáði fórnir þeirra,
en stal þó frá þeim örvum og gerði þeim lífið leitt á ýinS'
an hátt.
Tarzan bar þann ótta í brjósti, að svertingjarnir
mundu finna kofann hans á ströndinni og eyðileggja
hann. Hann hélt því flokki sínum á skógarsvæðinu sem
næst lá kofanum og sjálfur eyddi hann J>ar öllum sínum
frístundum.
374