Æskan - 01.09.1969, Page 24
Barnastúkan
ÁLFTIN
Eins og fyrr hefur verið birt í
fréttum, stofnaði stórgæzlumaður
nýja barnastúku í Álftamýrarskólan-
um í Reykjavík 9. nóvember s.l.
Stúkan hlaut nafnið ÁLFTIN nr. 166.
Stofnendur voru 82, auk gæzlu-
manna, Freyju Jóhannsdóttur og
Sigríðar Rögnu Sigurðardóttur, sem
báðar eru kennarar við skólann.
Stofnunin, sem var einkar hátíð-
leg athöfn, fór fram í hinum nýja og
glæsilega félagsmálasal skólans,
að viðstöddum fimm kennurum og
Núvorandi gæzlumenn og embættismenn.
Gæzlumenn: Freyja Jóhannsdóttir og Sigríður Ragna Sigurðardóttir.
ÆT. Bergur Arthúrsson, VT. Erla Jónsdóttir, FÆT. Jón S. Halldórsson, KAI’. Katla
Sigurgeirsdóttir, RIT. Anna Guðný Guðmundsdóttir. AR. Lilja Ólafsdóttir, FJR. Eggert
Guðjónsson, GK. Einar Svansson, DR. Agnes Johansen, ADR. María Héðinsdóttir, V.
Sigurjón Ingvarsson, ÚV. Gunnar Högnason, SKR. Jóhanna Iijörnsdóttir.
Mynd þessi er tekin á stofnfundi. Gæzlumenn, félagar og gestir.
tveimur kennaranemum. Auk stofn-
anda tóku þar til máls tveir kenn-
arar og fluttu stutt ávörp og heilla-
óskir.
Stúkan hefur starfað mjög vel í
vetur og hinir ungu félagar sýnt
mikinn áhuga.
Okkur bárust nýlega tvær ágæt-
ar myndir, sem teknar voru á stofn-
fundinum, og birtum við þær hér
með mikilli ánægju.
Við óskum stúkunni ÁLFTINNI
nr. 166 allra heilla í framtíðinni,
þökkum henni fyrir myndirnar og
fyrir góð störf í vetur. Jafnframt
þökkum við skólastjóra Álftamýrar-
skólans fyrir vinsemd hans í garð
stúkunnar og góða fyrirgreiðslu.
Börn skírö eftir
tunglfarinu!
Tvö þýzk börn munu ( fram-
tíðinni bera nöfnin Apollo 11,
og Appollónía. Appolló litli 11,
fæddist á fæðingarheimilinu f
Mainz. Móðir hans átti hann
nær á sama augnabliki og Arm-
strong og Aldrin stigu á tungl-
ið. Móðir Appollóníu átti hana
á sama augnabliki. Þýzk yfir-
völd hafa enn ekki tekið ákvörð-
un um það, hvort skíra megi
börnin þessum sérstæðu nöfn-
um.
380