Æskan - 01.09.1969, Page 28
G
Hún Ranka er rausnarkerling
D7
og rak eitt hæsnabú.
Hænurnar urpu eggjum,
G
sem átu ég og þú.
En svo var það einhverju sinni
G7 C
með svolítið (iðrum brag.
(am) (D7) G
Og Rönku er það ríkt í minni,
D7 G
hve reiddist hún þennan dag.
HÆNSIMA-
DANS
Ljóð ☆ STEFÁN JÖNSSON
G
í Hænsnakofa hennar
D7
var haldið þann dag ball,
því haninn hann var ungur
G
og hneigður f'yrir rall.
Ein hænan hló út að eyrum.
G7 C
— Hve haninn minn dansar þó vel,
(am) (D7) G
hún sagði. Þeim sýndist það fleirum,
D7 G
er sáu hans skrautfjaðra stél.
G
Svo spilar hún spotzk á nefið
D7
spennandi tango og vals,
fáort og stuttort stefið
G
var stogg-ogg og goggogg, alls.
En haninn var kankvís og kátur,
G7 C
með kambinum hljóðfallið sló.
(am) (D7) G
Og skarinn allur tók undir
D7 G
sitt alkunna gagg agga gó.
G
Hver hæna hrifin starði
D7
á hanann þetta sinn.
Hugsuðu eflaust allar:
G
— Hann er þó haninn minn.
Og heimsins sælustu hænur
G7 C
þær héldu sig allar jafnt.
(am) (D7) G
Af heimsins montnustu hænsnum
D7 G
var haninn montnastur samt.
Hann reigði rauða kambinn
D7
og reif sig oní kok.
Húsið skalf og hristist,
G
sem hefði komið rok.
Þótt fjaðrir af hænunum fykju,
G7 C
þær fengust ei um það neitt,
(am) (D7) G
en hömuðust heila daginn.
D7 G
Hver hæna varð löðursveitt.
G
Þá hélt hann ræðu, haninn.
D7
Hann hóf sig upp á prik:
— Þið heiðruðu ungfrúr, hænur,
G
ó, hlustið nú augnablik.
Þið lífinu létt skuluð taka
G7 C
og leika ykkur allar jafnt.
(am) (D7) G
Sjá, aldrei verpi ég eggjum,
D7 G
en ánægður lifi samt.
G
Því gleði tóm og glaumur
D7
og gaman lífið er,
ef enginn verpir eggjum,
G
en allir skemmta sér.
Og hænurnar góndu á hann glaðar
G7 C
og gögguðu margar: Heyr!
(am) D7 G
Sögðu og veltu þá vöngunt:
D7 G
— Nú verpi ég alls ekki meir.
G
Þá ræðst í dyrnar Ranka.
D7
Hún reif þær upp á gált.
Hún skók þar alla skanka.
G
Hún skammast voða hátt:
— Oh, hvílíkar hallæris hænur,
G7 C
nú held ég sé á ykkur lag!
(am) (D7) G
Og hvar eru úr ykkur eggin,
D7 G
sem átti ég að fá í dag?
G
Svo skalt þú, herra hani,
D7
nú hætta við þitt snakk,
og hér skalt þú ei halda
G
þig húsbónda! Ónei, takk.
Hér ræður hún Ranka gamla,
G7 C
sem reynzt hefur ykkur vel,
(am) (D7) G
og fæðuna ykkur færir.
D7 . G
Þér ferst ekki að sperra stél.
G
Hver hæna hætti dansi,
D7
hugsaði. — Þetta er satt.
Haninn hryggur, sneyptur,
G
hallaði undir flatt.
Já, hljóður var hænuskarinn
G7 C
og hópaðist út að vegg,
(am) (D7) G
og þegar að kerling kvaddi
D7 G
var komið hið fyrsta egg.