Æskan - 01.11.1969, Page 22
Ný kvjkmynd L1N9 (nngsokkur
Við skýrðum nýlega frá því hér í blaðinu, að sænska
sjónvarpið væri farið að sýna í framhaldsþáttum nýja
kvikmynd fyrir börn, sem gerð er eftir hinni frægu
sögu Astrid Lindgren, Lína langsokkur. Saga þessi
hefur nú komið út í 21 landi og alls staðar hlotið mikið
lof barna og unglinga. Aðalhlutverkið í kvikmyndinni,
Lína sjálf, er leikið af 10 ára gamalli sænskri telpu.
Inger Nilsson, sem var valin í hlutverkið úr hópi 8000
umsækjenda. Inger er dóttir blaðamanns og hún a
tvo bræður, annar þeirra, sem er 13 ára, leikur einnig
í myndinni, en hinn yngri, sem er aðeins sex ára,
hefur enn ekki fengið hlutverk. Framleiðandi mynda-
flokksins er Olle Helbom, sem tók myndina Saltkrák-
una, er sýnd var í íslenzka sjónvarpinu. Vonandi fa
íslenzk börn að sjá þessa bráðskemmtilegu kvikmynd
í sjónvarpinu hér.
— Hvað þótti ömmu be/.t? Það hét
svo skrýtnu naíni. Hann hatði einu
sinni bragðað á því hjá henni, og þá
hafði hún sagt, að þetta væri nú
uppáhaldsmaturinn sinn, hún l'engi
hann bara svo alltof sjaldan.
— Já, nú mundi hann það. Þetta
voru ábrystir.
— Guð hlaut að eiga nógar ábryst-
ir handa ömmu, að minnsta kosti á
jólunum — og rauðan kjól og gull-
skó, svo að hún yrði fín og íalleg,
fínni en allir í himnaríki. — Og höll
úr hvítum steini — glitrandi vagn að
aka í — og garð, fullan af rósum.
— Og hann ætlaði líka að biðja
Guð að gefa henni rúm, svo mjúkt,
að hún gæti sofið, þó að gigtin kveldi
hana. —
Þegar hér var komið, slitnaði hugs-
anaþráður Jóa litla. Klukkurnar
hringdu til útfarar.
Hann tók upp blaðapakkann og
strauk sér um nefið með erminni.
Um leið og hann hélt niður tröpp-
urnar straukst eitthvað undur mjókt
og hlýtt um vanga hans.
— Það er bara gusturinn, hugsaði
Jói og flýtti sér burt.
Hann sá ekki, að það var hún
amma hans gamla, sem strauk hon-
um blítt um kinnina í kveðjuskym
um leið og hún sveif með engilver'
unni fögru áleiðis til himinhæða, þal
sem hennar biðu allar gjafirnar hans
Jóa litla. Guðrún Jacobsen.
514