Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1969, Blaðsíða 44

Æskan - 01.11.1969, Blaðsíða 44
Það, sem áður er komið: IKomið hefur í ljós, að vinningur hefur fallið á numer happdrættismiða, sem Björg og vinstúlka hennar seldu. Birgir Bentson keypti miðann af þeim, og hann þarfn- ast peninganna mjög til ýmissa hluta. Björg man númer miðans og er viss í sinni sök. Það verður henn- ar hlutskipti að blása nýrri trú á Guð og hamingjuna í brjóst þeim, sem með henni eru. 5. KAFLI Birgir Bentson sat álútur í stól sínum og sýnilegt var á and- litssvip hans, að hann barðist milli vonar og ótta. „Tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur. Það getur ekki átt sér stað. Þá væri ekki framar peningaskortur hjá okkur. Trúir þú þessu, mamma?“ „Við skulum fyrst fá að vita vissu okkar um númerið," sagði frú Bentson með efahreim í röddinni. „Þetta er númerið," sagði Björg með ákefð. „Ég vona, að hér sé ekki um prentvillu að ræða. Annað eins liefur komið fyrir,“ sagði gamla konan. „Hvar skyldi miðinn annars vera?“ „Já, hann hlýtur að vera hér einlivers staðar. Bara að allt væri ekki svona á rúi og stúi. Nei, hjá mér er aldrei neitt i röð og reglu,“ sagði hann. „Það getur ekki orðið, meðan þú vilt hafa ailt svona,“ sagði móðir hans. „Þú bannar mér alltaf að taka vel til, og svo má aldrei fleygja neinu pappírsrusli." „Ég man, að þér létuð miðann í jakkavasa yðar,“ sagði Björg. „Hann hlýtur að vera á skrifborðinu," sagði Birgir. Svo fór hann að leita, — fyrst á skrifborðinu, í öllum blöðum þar, í hillum, á gólfinu, en hvergi fannst miðinn. Stúlkurnar hófu einnig leit og nú var leitað í öllum bókum og dagblöðum, blað fyrir blað, en ekki fannst miðinn. Að lokum sagði Björg: „Þú brauzt miðann saman og lézt hann í jakkavasa þinn. Þetta var köflóttur jakki með leður- bótum á olnbogunum. Ég sá einmitt, að leðurbæturnar voru fer- hyrndar en ekki ávalar.“ „Jakkinn er í fataskápnum. Biðið augnablik,“ sagði hann og þaut til dyra. „Bíddu,“ sagði móðir hans og nú gætti þreytuhljóms í rödd- inni. „Ég er hrædd um, að jakkinn sé hér ekki lengur. Þú fleygð- ir lionum um daginn." „Gerði ég ])að?“ sagði hann hissa. Frú Bentson kinkaði kolli. „Þú hefur aldrei kært þig neitt um jakkann," sagði hún. „En ég hef alls ekki fleygt jakkanum. Ég hef ekki efni á að fleygja jakka.“ Hún horfði niður í gólfið. „Vera má, að þú hafir ekki bein- linis fleygt honum, en þú liefur oft sagt, að þú kærðir þig ekk- ert um að eiga liann. Þér fannst hann of þröngur." „Jú, mér fannst það alltaf, einkum þegar ég var að skrifa eða leika á hljóðfæri." „Eg gaf hann hrott um daginn," sagði móðir hans. „Hverjum þá?“ spurðu ]>au. „Manstu ekki eftir inanninum, sem lijálpaði mér um daginn við að lagfæra frárennslið og mæninn á þakinu. Ég liafði enga peninga til að borga honum með, svo að mér datt i hug að bjóða honum jakkann, fyrst þú hefur aldrei kært þig um að eiga hann. Hann varð mjög glaður yfir að fá jakkann." „Hvaða maður var þetta?“ spurði Birgir Bentson. „Hann vinnur hjá skógræktinni og við tókum tal saman um daginn í húð niðri í þorpi. Mig minnir liann heita sænsku nafni, Larsson, Jönsson eða þvi um likt,“ sagði gamla konan. „Þá ætti ekki að vera vandi að finna hann,“ sagði Birgi1' Bentson. „En ef miðinn er ekki í vasanum?" sagði Stína. „Hann er þar áhyggilega,“ sagði Björg. „í hrjóstvasanuni. Þar var hann látinn. Maðurinn fer sízt af öllu að róta í þeim vasa. Við Stína förum og leitum að honum. Skógarvörðurinn býr skammt frá skólanum, og liann getur sagt okkur, hvaða maður þetta er.“ „Gott er að heyra það,“ sagði liann. Stúlkurnar kvöddu og þutu út, tóku reiðhjólin og óku * snatri niður að Eystraþorpi, unz þær komu að liúsi skógarvarð- arins við Eikarvatn. En hér urðu þær fyrir fyrstu vonbrigðun- um, af því að skógarvörðurinn var ekki heima. Húsið var lokað og livergi Ijós að sjá. „Þetta var nú lakara," sagði Björg. „Það er ekki gott að vita, hvar í skóginum hann er. Við skulum fara heim i skóla og lesa í hókunum okkar nokkra tíma og fara hingað aftur seinna.“ „Verð víst jafnvel að samþykkja lexíulestur, úr því svona stendur á,“ sagði Stína. Herbergi þeirra nefndist „Ferlaufasmárinn" og þar sat Karen við lestur, þegar þær komu inn. „Hvar liafið þið verið?“ spurði hún, tók penna og byrjaði að skrifa stíl. Þær sögðu lienni allt af létta. Þegar Karen lieyrði, að Birgir Bentson hefði trúlegast fengið vinning á happdrættismiðann, tók hún viðbragð, missti pennann og blekklessa kom í stíla- hókina. „Þetta eru miklir peningar. Varð hann ekki glaður?“ sagði hún. . „Jú, en gallinn er bara sá, að miðinn fannst ekki,“ sagði Stína. „Tókstu eftir, hvar liann lét hann, þegar liann keypti liann af okkur?“ spurði Björg. Karen hugsaði sig um, en sagði svo: „f hægri jakkavasann. „Ég held áreiðanlega, að hann liafi látið miðann í brjóst- vasann. En manstu i hvernig jakka hann var?“ „Slíkri flík gleyinir maður ekki,“ sagði Karen lilæjandi- „Hann var hræðilega Ijótur, stórköflóttur, gamall í sniði oS snjáður.^með sporöskjulöguðum bótum á olnhogunum." „Þær voru alls ekki sporöskjulaga," sagði Björg. „Þú hefur rétt fyrir þér. Þær voru tígullaga. Og sú, seni var 536
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.