Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1969, Page 29

Æskan - 01.11.1969, Page 29
g JÓLAGJAFIRNAR $ Hér á myndinni sjáiS þið jólasvein ásamt börnum sínum vera aS ganga frá jólapökkunum. Jólasveinn A hefur gengiS frá 22 pökkum. Jóla- sveinn B hefur gengiS frá helmingi færri pökkum en bróSir hans A. Jólasveinn C, sem er systir þeirra bræSra A og B hefur gengiS frá fimm pökkum fleiri en bróSir hennar B, og svo hefur sjáifur jólasveina- pabbinn gengiS frá 8 pökkum fleiri en sonur hans A hefur gert. Nú er þaS ykkar aS finna út hve mörgum pökkum þau öll hafa gengiS frá? Þrenn verðlaun, sem eru úrvalsbækur ÆSKUNNAR, verða veitt fyrir rétt svör. Ef mörg rétt svör berast, verSur dregiS um, hverjir hljóti verSlaunin. SendiS svör viS hverri þraut hér í blaSinu á sér blaSi með fuliu nafni og heimilisfangi. Svör sendist ÆSKUNNI fyrir 20. janúar 1970. Haíði Lóa með skapi'estu sinni og hjartagæðum komið því til leiðar á þennan liátt. 10. Veikindi Þegar Lóa var níu ára, fékk hún skarlatssótt. Lá hún þungt haldin í niu vikur og var um tíma vart hugað líf. Um tíma hafði hún óráð og var þá alltaf að tala um ein- kunnabókina sína, sem hún hélt að væri heima og vildi fá hana, en hún var nú í skólanum. Hálsinn á lienni bólgnaði svo, að hún var nærri slétt út á axlir. Skottulæknir, sem sóttur var (því aðra lækna var þar ekki að fá þá), stakk með skónál í bólguna, til þess að hleypa út greftr- inum. Bar Lóa síðan ör eftir þessa aðgerð á hálsinum til dauða- dags. Henni fór heldur að batna. Eina nótt lá hún í rúminu sem oftar, vakandi, en mamma hennar hafði lagt sig fyrir framan hana. Svaf mamma hennar vært, því að hún hafði vakað^í margar nætur yfir Lóu meðan hún var veikust. Lóu leið illa og langaði til að hreyfa sig, en þorði ekki að gera það, því að hún hélt, að hún myndi þá vekja mömmu sína. Svona lá hún grafkyrr lengi nætur, þó að hún væri sjálf sárþjáð og gætti þess að vekja ekki elsku mömmu sína, sem hún vissi að þarfnaðist hvíldar. Svona eru góðu börnin. j 1 : : : Þaö var komið aðfangadagskvöld, og gamli jólasveinninn átti eftir að heimsækja eitt heimili, þar sem góð börn biðu komu hans, en leiðin var löng. — Nú er það ykkar að hjálpa honum að komast skemmstu leiðina i til heimilis barnanna. 521

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.