Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1969, Side 54

Æskan - 01.11.1969, Side 54
FÖR GÚLLÍVERS TIL PUTALANDS Hð" keisarans er í miSri borg, þar sem tvö höfuðstrætin sker- ast. Múr er um hana 20 fet frá henni og tveggja feta hár. Ég fékk leyfi keisarans til að fara yfir múrinn, og þar sem rúm var svo mikið milli hans og hallarinnar, gat ég skoðað hana á alla vegu. Yzti garðurinn er 40 fet á hvern veg og tveir garðar innar. Herbergi keisarans snúa að innsta garðinum og langaði mig mjög til að sjá þau, en það var mjög erfitt. Húsin við ytri garðinn voru að minnsta kosti 5 feta há, svo að ég gat með engu móti klofað yfir þau, nema eiga á hættu að stórskaða byggingarnar, þó að veggirnir væru rammgerðir úr höggnu grjóti. Keisarann langaði mjög til þess, að ég gæti séð allt dýrindið I höll hans, en það gat ég ekki fyrr en þremur dögum síðar og þeim dögum varði ég til að skera uþþ með hnífnum mínum stærstu trén í trjágarði keisarans, nálægt 25 álnum frá borginni. Úr þessum trjám bió ég mér til tvo stóla, nálægt 3 fetum á hæð og nægilega sterka til að þola þunga minn. Þegar búið var að auglýsa fólkinu aftur komu mína, lagði ég af stað gegnum staðinn til hallarinnar með stóla mína, sinn I hvorri hönd. Þegar ég kom inn í hallargarðinn steig ég upp á annan stólinn, en tók hinn í hönd mér, lyfti honum varlega yfir þakið og setti hann gætilega niður á svæðið milli innri gprðanna, sem var 4 álna breitt. Ég steig svo auðveldlega af öðrum stólnum á hinn og dró svo fyrri stólinn upp á eftir mér með krókpriki. Með þessari tilhögun komst ég inn í innsta garðinn, og þegar ég lagðist þar niður á hliðina, bar andlt mitt rétt við gluggana á miðhæðinni og var þeim þá haldið opnum, íil þess ég gæti séð inn, og sá ég þá hinn fegursta og skrautlegasta bústað, sem hugsazt getur. Það var einn morgun nálægt hálfum mánuði eftir, að ég var látinn laus, að Reldresal, leyndarmálaráðherra, heimsótti mig í húsi mínu og hafði með sér aðeins einn þjón. Hann tjáði mér, að Putaveldi ætti við að stríða bæði flokkadrætti innan ríkis og svo ófrið utan að. Hann sagði, að fyrir meira en 70 tunglum hefðu risið hér upp tveir andvígir flokkar I ríkinu, sem hefðu kallað sig Tam og Slam, eftir háum og lágum skóhælum, sem þeir höfðu að flokkseinkennum. ,,Það er nú mál manna, að háu hælarnir séu samkvæmari voru eldgamla stjórnarformi. Þó eru keisarahælar hans hátignar að minnsta kosti fjórðungi úr þumlungi lægri en hælar nokkurs hirðmanna hans. Óvildin milli þessara flokka varð svo mögnuð, að þeir fást hvorki til að éta, drekka né tala saman. Og nú mitt í þessum innanríkiserjum vofir yfir oss ófriður frá Blefúskúriki, sem er annað mikla keisaradæmið í heiminum, ná- lega jafn víðlent og voldugt sem veldi hans hátignar, keisara vors. Sex þúsund tungla saga vor getur hvergi um nein önnur stór- veldi en þessi tvö, Putaveldi og Blefúskú. Og ég ætlaði einmitt að fara að segja yður frá því, að þessum tveimur ríkium lenti saman í hinum grimmasta ófriði fyrir 36 tunglum. Tildrög styrj- aldarinnar voru þessi: Allir menn eru samdóma um það, að ein- faldasta aðferð til að opna skurnið, áður en við etum egg, sé sú að brjóta gat á digrari endann. En þegar langafi hans núverandi hátignar var lítill drengur, ætlaði hann einu sinni að borða egg og braut það, eins og gert hafði verið frá ómuna tíð, en var svo óheppinn að særa sig í fingrinum. Þá sendi keisarinn, faðir hans út tilskipun, sem bauð öllum þegnum hans að brjóta mjóa endann á hverju eggi, og lagði við þunga refsingu, ef út af væri brugðið. En þjóðin reis svo öndverð móti lögum þessum, og saga vor segir frá sex uppreistum og byltingum, þ'ar sem einn keisari lét lífið og annar konungdóminn. Mönnum hefur talizt svo til, áð ellefu þús- undir manna á ýmsum tímum hafi heldur kosið að ganga í dauð- ann en að lúta að því að brjóta mjórri endann á eggjum sínum. Mörg hundruð bindi hafa verið skrifuð um deilur þessar, en allar bækur Digurendinga hafa verið gerðar upptækar fyrir löngu, og öllum flokkunum íyrirmunað með lögum að komast í nokkra stöðu eða embætti. En útlagar af Digurendingum hafa notið svo mikils skjóls hjá keisarahirðinni í Blefúskú, og íengið svo mikinn styrk og uppörvun frá flokki sínum hér, að það kom til blóðugrar styrjaldar milli þessara tveggja keisaradæma, sem nú hefur staðið 36 tungl, og hefum ýmsum veitt betur. Vér höfum misst á þessum tíma 40 vígdreka og aragrúa smærri skipa og 30 þúsundir af voru bezta liði og ágætustu sjómönnum. Svo er sagt, að óvinir vorir hafi þó beðið nokkru meira tjón en vér. En hversu svo sem það er, þá hafa þeir nú mannað mikinn flota og búa sig til að ráðast á oss. Nú hefur hans keisarahátign mjög mikið traust á hreysti yðar og afli, og hefur hann boðið mér að skýra yður sem Ijósast frá öllum málavöxtum." Ég hét ráðherranum að segja hans hátign, að hann ætti vísa mina undirgefnustu þjónustu, og þótt ég ætti að hætta lífi mínu til að verja hann sjálfan og veldi hans fyrir árásum óvina hans, þá gerði ég það hiklaust. Keisaradæmið Blefúskú er á eylandi einu norðaustur af Puta- landi og skilur þau veldi sund fjögur hundrað faðma breitt. Herfloti Blefúskú keisara lá þar nú, albúinn að halda af stað, þegar byr gæfist. Ég krafðist þá heilmikils af hinum sterkustu 546

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.