Æskan - 01.02.1979, Side 42
Spurningar og svör
Svar til Péturs, Reykjavík:
Körfuknattleiksdeild (R var
stofnuð árið 1949 og var fyrsti
formaður deildarinnar hinn
kunni hlaupagarpur Finn-
björn Þorvaldsson. Finnbjörn
var „primus motor" í fyrsta
hraðaupphlaupskerfinu, sem
notað var hérlendis, vegna
þess hve hann var frár á fæti.
Kvennakörfubolti var tek-
inn upp hjá (R 1950 og var
fyrsti þjálfari liðsins Hrefna
Ingimarsdóttir, sem var þá
nýútskrifuð sem íþróttakenn-
ari frá Laugarvatni.
(R er eina félagið, sem tekið
hefur þátt í öllum íslands- og
Reykjavíkurmótum frá upp-
hafi. Af þeim 27 (slandsmeist-
aramótum, sem haldin hafa
verið til þessa hefur (R sigraö í
15. I’ Reykjavíkurmótunum
hefur (R sigrað 10 sinnum, en
alls hefur verið keppt í 21
skipti.
fslandsmeistarar hafa ÍR—
ingar orðið árin 1954—5,
1957, 1960-4, 1969-73,
1975 og 1977. Reykjavíkur-
meistarar 1958, 1960—4,
1968-70 og 1975.
Glæsilegustu ár ÍR til þessa
voru tvímælalaust árin 1960 til
1965 en á þeim árum var (R-
liðið gjörsamlega ósigrandi
og vann öll mót. ÍR lék þá
samtals 47 leiki í röð í íslands-
og Reykjavíkurmótum án
þess að tapa. Fyrsti ósigurinn
eftir þessa einstæðu sigur-
göngu, kom á móti KR í seinni
umferð íslandsmótsins 1965.
Höfðu ÍR-ingar þá verið ó-
sigraðir í fimm ár.
leiki. Af þeim hafa 246 unnist,
65 tapast og einum lauk með
jafntefli, en það var áður en
reglurnar um aö engin jafn- I
tefli skyldu vera, tóku gildi- í
þessum leikjum hefur (R gert
alls 22.873 stig og fengið á sig
18.944.
Mesta stigaskor ÍR í leik oQ
jafnframt er það (slandsmef
var gegn Snæfelli í 1. deild-
inni 1976. (R vann þann leik
með 148 stigum gegn 76.
Núverandi formaður körfu-
knattleiksdeildar ÍR er Edvard
Ragnarsson.
UM PÁFAGAUKA
í BÚRUM
Svör við nokkrum bréfum
Nokkur bréf hafa borist um hvernig
börn úti á landsbyggðinni geti fengið
páfagauka og búr keypt hér í Reykja-
vík og send.
Langbest er það t. d. fyrir H. S. á
Egilsstöðum að biðja einhvern, sem fer
suður til Reykjavíkur með áætlunar-
flugvélum Flugleiða, að kaupa þetta
og koma með það með sér þegar
haldið er heim.
Gullfiskabúðin, Skólavörðustíg 7,
Reykjavík, selur bæði búr og fugla.
Um verð er það að segja, að það mun
vera kringum 2000 kr. á fugli og verð á
búrum fer eftir stærð, stór og góð búr
kosta u. þ. b. 6—14 þús. kr. Fugla-
fóður fæst einnig. — Síminn í þessari
verslun er 11757.
Fuglarnir þurfa að vera í góðum
stofuhita (þó ekki í sólskini) og alls
ekki þar sem trekkur eða súgur er,
það þola páfagaukar illa.
Annars eru til ýmsar bækur um
stofufugla. Til gamans má geta þess
að ein íslensk jurt (þær eru vafalaust
fleiri) ber fræ, sem páfagaukum líkar
mjög vel, en þessi jurt heitir Græði-
súra. (ágúst og september er auðvelt
að safna þessari plöntu til vetrar-
forða.
G.H.
Búi spyr: Hver orti kvæðið „Skugg-
inn" og í hvaða bók er það?
Svar: Höfundur kvæðisins er Sig.
Júl. Jóhannesson, en hann var fyrsti
ritstjóri Æskunnar. Kvæðið er í
Vísnabókinni.
36