Æskan - 01.02.1979, Síða 48
• HEIMILIÐ •
opnað hurð. Tveggja dyra
bifreiðir eru, að því er þetta
varðar, heppilegri en fjögurra
dyra bifreiðir. Þess vegna er
það þýðingarmikið að brýna
það snemma fyrir börnum að
snerta aldrei við hurðarlæs-
BORNIN OG
UMFERÐARSLYSIN
Eftir dr. G. C. Myers.
M esta umferðarhætta,
sem steðjar að barninu er,
þegar það hleypur út á göt-
una við leiki sína — eltandi
bolta, hlaupandi á undan fé-
laga sínum eða leikur sér úti á
götunni eins og hún væri
leikvöllur. Samt ætti barnið,
allt fram að því, að það fer að
ganga í skóla, alls ekki að fá
að fara út á eða yfir götu eitt
sér. Best er að byrja að kenna
barninu umferðaröryggi
strax, þegar það byrjar að
ganga. Það skiptir engu máli,
hvað leikfélagar þess gera,
það verður að vita það, að í
hvert skipti, sem það fer
fylgdarlaust út á götu, verði
því refsað. Foreldrar eða um-
sjónarmaður eða kona verða
að vera stöðugt á verði um
þetta atriði.
Strax er barninu hefur skil-
ist rækilega á hverju það eigi
von, ef það brjóti fyrirmæli
foreldra sinna um þetta efni,
mun það viröa þau. Best er að
barnið læri frá upphafi að
stansa ætíð á gangstéttar-
brún. Hafi barnið vanist þessu
getur það komið sér vel fyrir
það síðar meir, jafnt á sextán
ára sem sextíu ára aldri. Þýð-
ing þess að stansa þannig á
gangstéttarbrúnum er viður-
kennd. Barn, sem hefur vanist
slíku, hefur óneitanlega meiri
möguleika á að lifa, þangað til
það deyr eðlilegum dauð-
daga, heldur en barn, sem
ekki hefur gert það.
önnur regla, sem nauðsyn-
legt er að læra snemma er að
fara ætíð út úr bifreið þeim
megin, sem að gangstétt veit,
fara stystu leið upp á gang-
stéttina og bíða, uns bifreiðin
hefur ekið burtu. Þessari
reglu ber að breyta eftir, hvort
sem önnur bifreið kemur á
eftir eða ekki.
Það hefur því miður komið
fyrir, að foreldrar hafi ekið yfir
börn sín, þegar þeir hafa verið
að láta bifreiöir sínar inn í skúr
eða taka þær út úr þeim eða á
annan hátt heima við hús sín.
Gerið ykkur það því að reglu
að hreyfa aldrei bifreið án
þess að hafa fyrst gengið úr
skugga um, að engin slys geti
hlotist af.
Mörgum foreldrum hættirtil
að skilja bifreiðar sínar eftir
opnar og með lyklum í heima
við hús sín og jafnvel með vél í
gangi. Börn geta mjög
snemma sett bifreiðir af stað.
Það er því mjög góð regla að
leyfa börnum aldrei að vera
einum í bifreiðum.
Það hefur og átt sér stað,
að börn hafi fallið út úr bif-
reiðum á fullri ferð, vegna
þess að þau hafa fiktað við
hurðarlæsingu og þannig
ingum á bifreiðum og beita
þau refsingum ella.
Mörg slys hafa átt sér stað
vegna þess að foreldri hefur
truflast af deilu barna, sem
verið hafa í ökuferö með Þvl-
Unnt væri í slíkum tilfellum að
hafa annan deiluaðilann 1
framsæti en hinn í aftursaet1’
þótt slíkt ráði ekki fulla bót á
vandanum. Það er langskyn-
samlegast að nema staðar og
binda börnin sitt hvorun1
megin í aftursætið, enda er
það eðlilegra en að eiga það á
hættu að öll fjölskyldan dey'
eða slasist.
SVIFFLUGA
Það er ekki mikill vandi að búa til
svifflugu, eins og þú skalt nú sjá. Þú
færð þér pappírsblað, 12X10 cm,
brýtur það tvöfalt og klippir það eftir
punktalínunni eins og sýnt er á
myndinni. Svo setur þú dropa af
kertavaxi á nefbroddinn á flugvélinni
til þess að þyngja hana ofurlítið að
framan. Reyndu svo að halda flugvél-
inni yfir höfði þér og miðaðu henni
áfram og slepptu henni þegar hún er
komin á ferö. Og þú munt sjá, að hún
er talsverða stund að fljúga til jarðar.