Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 7

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 7
HRÓI HÖTTUR SMÁSAGA Þið hafið eflaust heyrt getið um Hróa hött, enska út- lagann. Hann var uppi fyrir mörgum öldum og hafðist við 1 skógum úti ásamt vinum sínum. Hrói höttur hjálpaði þeim, sem áttu bágt og urðu fyrir yfirgangi eða órétti. Enn þann dag í dag tindra augu ensku drengjanna, þegar þeir lesa um Hróa. Borgar- stjórinn, sem þá var í bænum Nottingham, var bæði undirförull og hinn mesti grimmdarseggur. Hann lagði Þunga skatta á borgarbúa og rúði þá inn að skyrtunni. Hrói höttur hjálpaði mörgum úr klónum á borgarstjór- anum, og þess vegna hataði hann Hróa. Oft reyndi hann að handtaka Hróa, en það var nú ekki allra meðfæri að klófesta sjálfan Hróa hött. Þegar þessi saga gerðist stóð þannig á, að borgar- stjórinn var nýbúinn að leggja stórfé til höfuðs Hróa, en Það virtist enginn ætla að verða til þess að vinna til verðlaunanna. Nótt eina dreymdi Hróa, að hann væri að berjast við tvo stóra og sterka bændur. Þeir höfðu barið hann óþyrmi- lega og í tilbót höfðu þeir tekið af honum bogann, besta vopnið hans. Aldrei hafði Hróa dreymt jafn illa. Hann var hræddur um, að þessi draumur myndi vita á eitthvað illt. Um morguninn sagði hann Litla-Jóni, besta vini sínum, drauminn. En Litli-Jón hló aðeins að honum. Hann trúði ekki á drauma. Hrói áleit samt betra að fara varlega. Hann fann á sér, að eitthvað mundi koma fyrir, áður en dagurinn væri úti. Því næst lögðu hann og Litli-Jón af stað inn í skóginn. Allt var með kyrrum kjörum. Vindurinn þaut í trjánum, fuglarnir sungu og sólin skein í heiði. Loks komu þeir í róður eitt í skóginum. Sáu þeir þá stóran og sterklegan náunga á gægjum bak við eitt tréð. Hann bar sverð við hlið og hélt á stórum boga í hendinni, og klæddur var hann í föt úr hestsskinni frá hvirfli til ilja. ,,Ef mér ekki missýnist, er þetta einhver svæsnasti bardagamaðurinn í Nottingham", sagði Litli-Jón. „Bíddu mín hér. Ég ætla að fara og spjalla ögn við hann og vita hvort hann hefur illt í hyggju." „Þaó yrði þá í fyrsta sinn, sem Hrói höttur hlypi á bak við menn sína,“ svaraði Hrói reiðilega. „Haltu áfram til Nottingham og reyndu að komast á snoðir um, hvað borgarstjórinn hefur í hyggju. Ég ætla sjálfur að tala við náungann bak við tréð.“ Litli-Jón gerði eins og honum var sagt, þótt honum væri það nauðugt. Hann elskaði og dáði höfðingja sinn, skógarmanninn. Honum datt ekki í hug að óhlýðnast skipunum hans. Menn Hróa voru líka á næstu grösum. Þeir skildu því þarna. Hrói gekk yfir rjóðrið til þess að tala við manninn í skinnfötunum. En Litli-Jón fór áleiðis til Nottingham. Ekki hafði hann lengi gengið, er hann sá þá sjón, er fékk honum nóg að hugsa. Undir gömlu eikitré rakst hann allt í einu á tvo félaga sína dauða. Meðan Litli-Jón virti þá fyurir sér, kom einn af mönnum hans á harða- hlaupum. „Flýðu!“ kallaði hann. „Borgarstjórinn í Nottingham er á hælunum á okkur með hundrað vopnaða sveina. Hann hlífir engum, sem hann grunar að sé í þjónustu Hróa hattar." Maðurinn þaut áfram, en Litli-Jón hugsaði sig um. Hann var aldrei vanur að flýja, en tíminn var naumur. Hann sá, hvar menn borgarstjórans komu hlaupandi. Litli-Jón þekkti hvern krók og kima í skóginum, svo að það hefði verið innan handar fyrir hann að skjótast undan. En kurteis maður hleypur ekki í felur, fyrr en hann er búinn að heilsa komumönnum, hugsaði Litli-Jón. Að svo búnu lagði hann ör á streng og miðaði á borgarstjórann, sem kom ríðandi í broddi fylkingar. Örin hæfði ekki markið. Hún þaut framhjá borgarstjóranum, en drap í staðinn 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.