Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 38
gPPSKRIFTIR
ÆSKUNNAR
EPLASKÍFUR.
20 stykki.
125 grömm hveiti
V« teskeið natron
1 matskeið sykur
ca. 2V2 dl. súrmjólk
1 st. egg
'A teskeið rifinn sítrónubörkur
smjörlíki eða smjör til að baka í.
(notið ekki hrærivél)
1. Hrærðu hveitið og natrónið,
sykur og súrmjólk saman.
2. Hrærðu eggjarauðunni sam-
an við.
3. Blandaðu brædda smjörinu
og sítrónuberkinum saman
við.
4. Þeytið eggjahvítuna og
blandið henni í deigið.
5. Hitið pönnuna (eplaskífu-
pönnu) vel upp.
6. Setjið smjörið í hólfin á
pönnunni.
7. Fyllið hólfin upp af deiginu að
tveim þriðju hlutum.
8. Bakið skífurnar við jafnan
hita.
9. Snúðu eplaskífunni við með
gaffli, þegar hún fer að verða
brún á neðri hlið. Bakið svo
hina hliðina hæfilega.
10. Fullbakaðar skífur eru borð-
aðar með strásykri, sem
stráð er á þær. Einnig má
nota sultu í stað sykurs.
AMERÍSKIR HAMBORGARAR
(handa tveimur)
1 laukur, 15 grömm smjör (eða
smjörlíki)
2 frosnir hamborgarar,
2 teskeiðar tómatsósa,
2 bollur.
1. Skerið laukinn niður í þunnar
sneiðar.
2. Steikið laukinn (sneiðarnar)
á pönnu.
3. Leggið lauksneiðarnar á disk
og steikið hamborgarana á
pönnunni í 3—4 mínútur
hvora hlið.
4. Skerið bollurnar sundur og
steikið þær lítið eitt á skurð-
fletinum.
Afgreiðsla ÆSKUNNAR er að Laugavegi 56, sími 17336
34