Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 44

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 44
Einu sinni bjó lítill blýantur heima á borðinu hennar Grétu litlu. Gréta teiknaði með honum alls konar dýr og hluti, og blýanturinn var orðinn þessu svo vanur, að það mátti heita að hann væri farinn að teikna sjálfur. Það var því ekki aó furða, þó að Grétu litlu þætti vænt um þennan litla blýant. Einu sinni þegar Gréta litla var sofnuð, kom lítil mús upp á boróið, þar sem blýanturinn lá. Þegar músin sá blýantinn, dró hún hann niður á gólfið og alla leið inn í holuna sína, sem var úti í horni. ,,Viltu ekki gera svo vel og sleppa mér?“ sagði blýanturinn dálítið æstur. „Hvert ætlar þú að fara með mig? Ég er búinn til úr tré, svo að þú getur ekki étið mig.“ ,,Ég ætla bara að naga þig. Mig klæjar svo agalega mikið í munninn, ég má til að fá eitthvað til að naga. — Rétt si svona!" Og svo beit músin í blýantinn, svo að hann fann voðalega mikið til. ,,Æ, æ!“ veinaði blýanturinn. — „Lofaðu mér að minnsta kosti að teikna eina mynd áður en þú étur mig.“ ,,Jæja þá,“ sagði músin. „Teiknaðu þá eitthvað. En síðan skal ég naga þig uþp til agna." Blýanturinnn andvarpaði djúpt og fór síðan að teikna stóran hring. ,,Er þetta ostur?" spurði músin. ,,Það getur vel verið," sagði blý- anturinnog teiknaði þrjá litla hringi í viðbót. ,,Þetta er víst ostur," sagði músin. ,,Og það eru meira að segja göt í honum." ,,Það getur vel verið," sagði blý- anturinn og teiknaði nú stóran hring við hlið hinna. ,,Þetta er epli," öskraði músin. ,,Ja, kannski," sagði blýanturinn og teiknaði nú aflangan hring fyrir neðan hinn. ,,Ég veit hvað þetta er,“ skrækti músin. „Þetta er pylsa. En nú skaltu hætta, því að mig langar svo mikið til að fara að naga þig.“ „Bíddu svolítið," sagði blýanturinn, og svo fer hann að teikna tvö horn á efsta hringinn. Þegar músin sá þetta, skrækti hún af hræðslu og sagði: „Þetta líkist ke . . . Teiknaðu ekki meira." En þá hafði blýanturinn þegar teiknað veiðihárin. „Þetta er reglulegur köttur!" skrækti músin dauðhrædd. „Bjarg- aðu mér!" — Og svo steypti músin sér kollhnís inn í holuna sína. Síðan hefur enginn séð hana. En blýanturinn lifir enn á borðinu hennar Grétu. En hann er nú orðinn gamall og bara ofurlítill stubbur. H. J. M. þýddi. HANDAVINNA Þegar lítið er að gera, er oft gott að hafa eitthvert föndur-verkefni til þess að glingra við. Tökum til dæmis þetta: Fyrst er búin til „beinagrind" dýrsins og er hún gerð úr pípuhreinsurum (sjá A). Beinagrindin er styrkt með pappírsræmum, sem settar eru fastar með límbandi. — Síðan er dýrið fyllt upp (eða formað) með hnoðleir, sem harðnar án brennslu (Das-leir) eða þá papp- írs-„massa“. Sá „massi“ er þannig gerður, að pappír er reitt- ur niður í smásnepla og blandað saman við veggfóðurlím, leyst upp í vatni. Eftir nokkurn tíma, þegar dýrið er orðið vel þurrt og sæmilega hart viðkomu, má slípa það með sandpappír og mála það með vatnslitum. (sjá mynd B) 1 L r 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.