Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 37
Stuttbuxurnar koma sér vel viö
erfiðisvinnu og í gönguferðum og við
tjöldun og eins ef klífa þarf. Þær eru
ódýrari en síðbuxur og heilsufræði-
lega séð betri. Fótleggirnir eru alveg
óþvingaðir, og loft getur leikið um þá.
Og annar kostur þeirra er sá, að þið
getið verið sokkalaus, þegar blautt er
úti, og eigið ekki á hættu að bleyta föt
ykkar.
Sokkunum er haldið uppi með
sokkaböndum með grænum skúfum,
sem sér á niður undan uppbrotinu.
Skór eru betri en há stígvél, sökum
þess að þá getur loftið leikið um fót-
leggina og dregið úr hættu þeirri er
stafar af kuldanepju og ertingu, er
rakir sokkar einatt valda, þegar þétt-
reimuð stígvél eru notuð.
Skátar um allan heim eru tengdir
bræðraböndum sökum ríkjandi sam-
kvæmni og samhæfi um gerð og
notkun skátabúningsins.
Hreyfingu okkar er sómi í, að hver
einstakur skáti klæðist einkennis-
búningum á réttan hátt og útbúnaður
hans allur beri vott um smekkvísi og
fegurð. Slíkt sýnir virðingu hans fyrir
sjálfum sér og sveitinni í heild.
Að festa saman stafi.
Það getur oft komið fyrir, að þið þurfið að
binda saman tvo stafi í kross, en þetta er
vandgert ef bindingin á að vera föst og
stöðug. Hér á myndunum sjáið þið hvern-
ig best er að binda. Þið búið fyrst til iykkju
á spottaendann, eins og sýnt er á 1 og
bregðið henni utan um stafina (sjá mynd
2.) Nú er vafið fast um samskeytin þrisvar
til fjórum sinnum (mynd 3) í þá átt sem
örin sýnir, og loks er endanum vafið
nokkrum sinnum utan um stafinn.
tZ9
33 *
69 & .•*
•V6
é* >V7
66« * ’va
fst VI ®
* «56 •«
.55
Lalli á langa ferð fyrir höndum. Til hvaða lands er hann að fara? Ef
þið dragið strik frá 1 til 2 og svo áfram til 85 finnið þið rétta svarið.
AÐ RATA RÉTT
Sá sem vill ferðast og komast leiðar
: sinnar á sem öruggastan og bestan
hátt, lærir að nota kort og áttavita.
; Hann veit, hve mikið er undir því
komið, aö hann læri þetta rétt og haldi
; kunnáttunni við. Skátalögin eru
nokkurs konar áttaviti. Þau ætti eng-
: inn að læra í belg og biðu, heldur
hugleiða, hvernig á að notfæra sér
I þau í daglegu lífi og samskiptum við
I annað fólk til dæmis. ,,Skáti segir
ávallt satt", o. s. frv. Lestu skátalögin
I daglega.
NÝIR áskrifendur fá einn eldri árgang í kaupbæti
33