Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 21

Æskan - 01.10.1981, Blaðsíða 21
Llr kvlkmyndlnnl „Gulllykllllnn". Þetta leiðir mig að öðru vandamáli, sem höfundar barnakvikmynda þurfa að glíma við. Á því er enginn vafi, að allir leitast þeir við að skapa lifandi verk um börn og fyrir börn. En hvernig er hægt að ákveða trúverðug- leikastig kvikmyndar, sem ætluð er unglingum? Það er ekkert leyndarmál, að meðal rithöfunda og kvikmynda- gerðarmanna eru eindregnir fylgismenn þess að sýna lífið í rósrauðu Ijósi. Röksemdir þeirra virðast einfaldar og rökréttar: Einstaklingur, sem elst upp með því sem fallegt er virðist líklegri til þess að veróa góður maður heldur en sá sem aðeins þekkir hið illa. í kjölfar Mark Donskojs hafa sovéskir kvikmynda- gerðarmenn einnig reynt, að sjálfsögðu hver eftir sinni getu, að leysa þetta höfuðvandamál. Árangurinn eru myndir eins og Bjallan hringir, opnió dyrnar! eftir Alexander Mitta. Þetta verk, sem raunar var ætlað drengjum og stúlkum en nýtur einnig mikilla vinsælda hjá fullorðnum (öfugt því sem átti sér stað um Bernskun), er athyglisvert fyrir þá staðreynd, að bernskan er ekki kynnt sem heimur auðveldleika og einfaldleika þar sem allir erfiðleikar leysast skjótt og öll sár gróa fljótt. I' samúð okkar með söguhetjunni, sem er 12 ára stúlka, gerum við okkur Ijóst, að þetta tímabil í lífi hennar, eins og annarra jafnaldra hennar, er ábyrgt tímaskeið gætt raunveruleg- um tilfinningum. Við sjáum, að stundum er stúlkan til- finningaheitari, betri, og þegar allt kemur til alls, á sið- ferðilega hærra stigi en sumir hinna fullorðnu. Þegar móðir hennar segir við hana alvarleg, í einlægni og án minnsta votts af hæðni: „Ég virði þig einnig," finnur áhorfandinn til mikillar ánægju vegna þess að orðin hljóma svo sönn. Vegna þess að öll myndin ber glöggt vitni um einlæga virðingu fyrir hinum innra heimi ung- lingsins. SÉRSTAKLEGA HANDA UNGUM ÁHORFENDUM Árlega eru gerðar í Sovétríkjunum upp undir 30 kvik- myndir í fullri lengd, sem ætlaðar eru börnum. Nálega helmingur þeirra er gerður af Gorkí barna- og æsku- lýðskvikmyndaverinu í Moskvu, eina kvikmyndaveri heims sinnar tegundar. Þetta stóra nútímafyrirtæki er þegar orðið 40 ára gamalt og starfslið þess telur um 3000 manns, þar á meðal eru heimskunnir meistarar eins og Mark Donskoj, Sergei Gerasimov og Stanislav Rostotskí, sem eru kunnir kvikmyndagerðarmenn og leikarar. Auk þess framleiða öll sovésku teiknimyndaverin, 18 að tölu, kvikmyndir fyrir börn og unglinga. Kvikmyndaver utan Rússlands, en þau eru starfandi í öllum sambands- lýðveldunum 15, framleiða kvikmyndir á því tungumáli, sem talað er í lýðveldinu, en síðan er sett inn á þær rússneskt tal. Þannig að börn um allt landið geti notið þeirra. Ungum börnum er aðallega boðið upp á teiknimyndir og leikbrúðumyndir, sem framleiddar eru af Sojuzmult- film kvikmyndaverinu í Moskvu og kvikmyndaverum í fleiri sovéskum borgum. Sovésk ungmenni njóta einnig forréttinda hvað varðar dreifingu kvikmynda: Starfandi eru 325 kvikmyndahús, sem einvörðungu helga sig sýningu barnamynda. Auk þess sýna öll kvikmyndahús „fullorðinna" einnig barna- myndir. Aðgöngumiðinn kostar aðeins 10—15 kópeka, eða minna heldur en einn rjómaís. Barnakvikmyndir eru ákaflega vinsælar í Sovétríkjunum: Árið 1978 var seld ein billjón aðgöngumiða að slíkum kvikmyndum. ÁRANGUR SUMARSINS! Afgreiðsla ÆSKUNNAR er að Laugavegi 58, sími 17336. 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.