Æskan - 01.04.1984, Page 5
ÞÁ UNDU MENN GLAÐIR VIÐ SITT ...
^egar við ákváðum að taka þátt í þessari ritgerð-
arsamkeppni þá uppgötvuðum við að við áttum ekki
völ á mjög mörgum á þessum aldri sem voru tilbúnir
H að ræða við okkur. Fyrir valinu varð þó Lárus
Blöndal bóksali, afi Þórs.
Lárus fæddist 11. mars 1914 á Eyrarbakka. For-
eldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson kaupm.
°9 kona hans Ragnheiður Blöndal. Á þeim tíma,
Þe9ar hann var að alast upp, var Eyrarbakki aðal-
Verslunarmiðstöð fyrir Árnes-, Rangárvalla- og
^•-Skaftafellssýslu. Þá voru engin farartæki nema
hesturinn og hestvagninn. Menn komu til Eyrarbakka
1 svokallaðar lestarferðir á vorin til að birgja sig upp af
varningi og selja afurðir sínar.
Sex ára fór hann í sveit að Hofi á Rangárvöllum og
tók tvo daga að komast þangað með „lest“ en tekur
nú röskan klukkutíma á bíl. Lestarferðir voru áður fyrr
Lárus
Blöndal,
bóksall.
Helgi og Þór ræða við Lárus Blöndal bóksala
geysilegt ferðalag enda fóru hestarnir fetið alla leið-
ina.
- Stundaðir þú mikið íþróttir í gamla daga?
„Já, og íþróttir í minni æsku voru einkum glíma og
fimleikar þegar í skólann kom.“
- Geturðu sagt okkur eitthvað frá stríðsárunum?
„Allir trúðu þá að hlutleysi væri einhver vernd sem
stríðsaðilum bæri skylda til að virða. Það kom hins
vegar á daginn að þetta blessaða hlutleysi var einsk-
isvert og alls ekki virt af hvorugum aðila. Báðir höfðu
uppi áætlanir um hernám hér en við vorum svo hepp-
in ef hægt er að nota það orð að Bretarnir komu hér
skömmu áður en Þjóðverjanna var von. Þess vegna
er fáránlegt að halda að hlutleysi sé einhvers virði í
nútíma hernaði."
da9 en þá var fermt í sveitinni. Heiman að frá okkur
Var stíf klukkustundar reið til kirkju eftir hestagötum
°9 troðningum yfir ár og læki. Þetta var ógleyman-
'e9t- Hin ferðin var svokölluð smalaferð. Þá fórum við
^rakkarnir með foreldrum okkar í heimsókn í næstu
SVeit til að finna frændfólk okkar og þá var gist eina
n°tt. Ekki minnist ég fleiri ferða foreldra minna frá bæ
an erinda."
- Lékuð þið ykkur við krakka frá öðrum bæjum?
"Krakkar léku sér aldrei saman nema í frímínútun-
Urn í skólanum. Lífið sjálft var börnunum leikur."
~ Hvað um menntunina?
"Hún mun hafa verið upp og ofan eftir nemendum
sjálfum eins og nú er. Skóli starfaði sex mánuði á ári
á tveim stöðum í sveitinni, þrjá mánuði á hvorum
stað, hálfan mánuð í senn. Heimanám var svo í skóla
lífsins þess á rnilli."
- Var nokkuð um það að 14-15 ára börn reyktu
eða drykkju áfengi?
„í þann tíð hefði engum dottið í hug að bendla börn
við vín eða tóbak enda ekkert fordæmi fyrir slíku á
afdalabæjum í strjálbýlli sveit."
- Þegar þú lítur til baka, hvort finnst þér mannlífið
hafa batnað eða versnað?
„Þessu get ég ekki svarað. En ég veit að allur
hugsunarháttur manna er mikið breyttur."
5