Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1984, Síða 5

Æskan - 01.04.1984, Síða 5
ÞÁ UNDU MENN GLAÐIR VIÐ SITT ... ^egar við ákváðum að taka þátt í þessari ritgerð- arsamkeppni þá uppgötvuðum við að við áttum ekki völ á mjög mörgum á þessum aldri sem voru tilbúnir H að ræða við okkur. Fyrir valinu varð þó Lárus Blöndal bóksali, afi Þórs. Lárus fæddist 11. mars 1914 á Eyrarbakka. For- eldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson kaupm. °9 kona hans Ragnheiður Blöndal. Á þeim tíma, Þe9ar hann var að alast upp, var Eyrarbakki aðal- Verslunarmiðstöð fyrir Árnes-, Rangárvalla- og ^•-Skaftafellssýslu. Þá voru engin farartæki nema hesturinn og hestvagninn. Menn komu til Eyrarbakka 1 svokallaðar lestarferðir á vorin til að birgja sig upp af varningi og selja afurðir sínar. Sex ára fór hann í sveit að Hofi á Rangárvöllum og tók tvo daga að komast þangað með „lest“ en tekur nú röskan klukkutíma á bíl. Lestarferðir voru áður fyrr Lárus Blöndal, bóksall. Helgi og Þór ræða við Lárus Blöndal bóksala geysilegt ferðalag enda fóru hestarnir fetið alla leið- ina. - Stundaðir þú mikið íþróttir í gamla daga? „Já, og íþróttir í minni æsku voru einkum glíma og fimleikar þegar í skólann kom.“ - Geturðu sagt okkur eitthvað frá stríðsárunum? „Allir trúðu þá að hlutleysi væri einhver vernd sem stríðsaðilum bæri skylda til að virða. Það kom hins vegar á daginn að þetta blessaða hlutleysi var einsk- isvert og alls ekki virt af hvorugum aðila. Báðir höfðu uppi áætlanir um hernám hér en við vorum svo hepp- in ef hægt er að nota það orð að Bretarnir komu hér skömmu áður en Þjóðverjanna var von. Þess vegna er fáránlegt að halda að hlutleysi sé einhvers virði í nútíma hernaði." da9 en þá var fermt í sveitinni. Heiman að frá okkur Var stíf klukkustundar reið til kirkju eftir hestagötum °9 troðningum yfir ár og læki. Þetta var ógleyman- 'e9t- Hin ferðin var svokölluð smalaferð. Þá fórum við ^rakkarnir með foreldrum okkar í heimsókn í næstu SVeit til að finna frændfólk okkar og þá var gist eina n°tt. Ekki minnist ég fleiri ferða foreldra minna frá bæ an erinda." - Lékuð þið ykkur við krakka frá öðrum bæjum? "Krakkar léku sér aldrei saman nema í frímínútun- Urn í skólanum. Lífið sjálft var börnunum leikur." ~ Hvað um menntunina? "Hún mun hafa verið upp og ofan eftir nemendum sjálfum eins og nú er. Skóli starfaði sex mánuði á ári á tveim stöðum í sveitinni, þrjá mánuði á hvorum stað, hálfan mánuð í senn. Heimanám var svo í skóla lífsins þess á rnilli." - Var nokkuð um það að 14-15 ára börn reyktu eða drykkju áfengi? „í þann tíð hefði engum dottið í hug að bendla börn við vín eða tóbak enda ekkert fordæmi fyrir slíku á afdalabæjum í strjálbýlli sveit." - Þegar þú lítur til baka, hvort finnst þér mannlífið hafa batnað eða versnað? „Þessu get ég ekki svarað. En ég veit að allur hugsunarháttur manna er mikið breyttur." 5

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.