Æskan - 01.04.1984, Qupperneq 9
Verða einnig leiður. Þess vegna hóf hann að flauta
ðátt og leika ýmsar listir. Það glaðnaði yfir Pésa
Þegar hann sá kætina í staranum og þeir hoppuðu
hvor á eftir öðrum um grasflötina og það var svo
gaman að hann gleymdi því að hann rataði ekki heim
°g hve svangur hann var.
Svona skoppuðu þeir, blístruðu og flautuðu lengi
VeÞ en allt í einu brá Pésa óskaplega því að starinn
rak upp óhugnanlegt hljóð og flaug eins og skot beint
UPP í næsta tré. Hvað var nú þetta? Hvers vegna lét
starinn svona? Og þetta hljóð sem hann rak upp um
leið og hann flaug af stað var alveg eins og. . . eins
og hvað?
Pési hugsaði og hugsaði. Loks sagði hann við
sjálfan sig: „Núna veit ég það, þetta hljóð í staranum
y3r eins og viðvörunarhljóð."
Hann var montinn að hafa uppgötvað þetta en
skildi samt ekki hvers vegna starinn lét svona. Pési
le't í kringum sig og vissi ekki hvort hann ætti að
fljúga á eftir honum eða hvíla sig í grasinu. En á
^eðan hann var að hugsa sig um, fann hann að ein-
Þver kom við stélfjaðrir hans. Hann leit við og kólnaði
UPP þegar hann sá stórt kvikindi liggja á maganum
rett hjá sér og það var önnur framiöppin sem lá á stéli
Þans. Þetta var köttur.
Hann komst ekki til að segja neitt því að dýrið lyfti
^oppinni til þess að koma betur við hann. Þá sá hann
klasr og flaug upp á sorptunnu sem var þar rétt hjá.
Hú mundi hann eftir viðvörunarhljóði starans og skildi
aé það hefði verið vegna þessa óvelkomna gests.
,Úff, en þær klær,“ hugsaði Pési og skalf af
hr9eðslu. En honum létti þegar hann sá að grasflötin
Var auð. „Þarna slapp ég vel,“ hugsaði hann, en það
er ómögulegt að vera hér úti og eiga von á öllu illu.
,Hvað á ég að gera?“ Pési náði varla andanum
fyir kvíöa og leit sorgmæddum augum upp eftir stóra
húsinu.
Hann starði lengi á gluggana og var alveg að gef-
ast upp að horfa þegar hann kipþtist við og varð
sPenntur. Það kom einhver út í einn gluggann og
^ési Sá að það var Gummi. Já, það var greinilega
hann Gummi, vinur hans. Þarna lá hann úti í gluggan-
Urn og skimaði í kringum sig. Hann blístraði og kallaði
°9 Pési varð máttlaus af gleði. En hvað hann þekkti
Þetta blístur vel. Og svo kallaði Gummi líka: „Pési,
pési minn korndu."
Pési blés sig upp af ánægju, teygði úr sér og
Þrammaði sperrtur fram og aftur á tunnulokinu. Hann
Hallaði undir flatt svo að hann gæti hlustað betur á
tsjlegu röddina hans Gumma og þetta góðkunna
élístur. Nú var gaman að vera til. Hann var ekki
'engur einn og umkomulaus og vissi nákvæmlega
^var hann átti heima. Nú var allt í þessu fína og þess
Ve9na datt Pésa í hug að stríða Gumma dálítið rétt
Sv°na til þess að láta ánægju sína í Ijós.
Hann hélt áfram að þramma um tunnulokið og
Moldvörpuhjónin hafa mannað sig upp í tilefni af því,
að þau hafa nýlokið við að gera híbýli sín svo erfið
inngöngu, að ekkert dýr á að geta fundið leiðina. -
Finnið þið hana?
þóttist hvorki heyra né sjá. Þetta var skemmtilegt því
að Gummi hækkaði blístrið og var farinn að láta öll-
um illum látum til þess að vekja athygli á sér. Nú var
komið fjör í leikinn. Pési ætlaði að halda þessu áfram
og var ekkert að flýta sér heim. En þegar hann kom
auga á köttinn sem var að læðast meðfram húsinu
beið hann ekki boðanna heldur flaug beint upp og
lenti á öxlinni á Gumma.
Nú fann Pési til þreytu en líka mikillar ánægju. Það
var svo gott að sitja á öxlinni hans Gumma sem lét
ánægju sína í Ijós með því að hlæja hátt og lengi.
Hann sneri frá glugganum og gekk að hurðinni. En
þá mundi Pési eftir staranum sem hafði verið svo
góður. Hann flaug af öxlinni og settist á gluggakist-
una.
í stóra trénu fyrir utan sat starinn og horfði ákafur í
kringum sig eins og hann væri að leita að einhverju.
- „Hann er að leita að mér“ - hugsaði Pési og
flautaði til þess að vekja athygli á sér. Um leið og
starinn heyrði flautið leit hann upp í gluggann og
baðaði út vængjum af gleði þegar hann kom auga á
Pésa. Svo blístraði hann hvellt og hátt um leið og
hann flaug út í buskann, feginn því að skrautlegi fugl-
inn hafði komist heim til sín.
Pési horfði á eftir honum og það lá við að hann
fengi tár í augun þegar hann hugsaði til þess hvað
það er gott þegar allir eru góðir eins og fuglarnir sem
hann hitti í garðinum og svo Gummi og fjölskylda
hans. „Svona á þetta að vera alla daga og alltaf,"
hugsaði hann um leið og hann flaug inn í búrið sitt til
þess að fá sér lítil korn í gogginn því að hann var glor-
soltinn. Svo ætlaði hann að hvíla sig hjá speglinum
sínum. Það var dásamlegt að vera kominn heim.
9