Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1984, Page 10

Æskan - 01.04.1984, Page 10
Samstarfsaöili í Askriftasöfnun 1984: rANSVAR-TRYGGINGAFÉLÖG í 12 LÖNDUMl Fyrir rúmlega 50 árum síðan var stofnað í Svíþjóð tryggingafélag fyrir bindindismenn sem hlaut nafnið IANSVAR. Ástæðan fyrir stofnun þessa tryggingafélags var sú, að menn vissu að þeir sem ekki neyta áfengis lenda síður í tjónum en þeir sem hafa áfengi um hönd j og því þótti eðlilegt að bindindismenn greiddu lægri tryggingaiðgjöld en aðrir. Þar sem þau tryggingafélög, sem þá störfuðu í Svíþjóð, seldu tryggingar sínar á sama verði til allra viðskiptavina sinna hvort sem þeir neyttu áfengis eða ekki, þá þótti mönnum það heillaráð að stofna sér- stakt tryggingafélag fyrir bindindismenn. Það var ein- mitt gert árið 1932. Á þeim 50 árum sem síðan eru liðin hefur trygg- ingafélaginu ANSVAR vaxið fiskur um hrygg og nú starfa tryggingafélög bindindismanna í 12 löndum víða um heiminn og hjá þeim tryggja samtals um 500.000 fjölskyldur. í töflunni hér að neðan sérðu hvaða lönd þetta eru, auk þess sem tilgreint er hvenær ANSVAR hóf starf- semi sína í viðkomandi landi og hversu margir íbúar landanna eru; ennfremur fjöldi trygginga. Hóf íbúafjöldi Fjöldi Land: starfsemi: í þúsundum: trygginga: Ástralía 1962 1.4000 42.000 Bandaríkin 1983 227.700 Belgía 1980 2.700 Danmörk 1955 5.100 7.700 England 1960 56.000 36.000 Holland 1968 14.100 10.500 ísland 1960 235 9.000 Japan 1972 116.800 Noregur 1957 4.100 75.000 Nýja-Sjáland 1982 3.100 Svíþjóð 1932 8.300 302.000 V-Þýskaland 1972 61.600 1.400 483.600 ÁBYRGÐ - tryggingafélag bindindismanna Eins og fram kemur í töflunni var ÁBYRGÐ stofnað árið 1960 og verður því 24 ára á þessu ári. Hjá ÁBYRGÐ tryggja um 5.500 einstaklingar bíla sína, heimili og hús, en hjá ÁBYRGÐ eru á boðstól- um allar þær tryggingar sem fjölskyldunni eru nauð- synlegar. Orðið ANSVAR þýðir einmitt ÁBYRGÐ og við segj- um að í því felist tvær merkingar: Annars vegar vill ÁBYRGÐ ábyrgjast góðar trygg- ingar fyrir viðskiptavini sína gegn lægri iðgjöldum en annars þekkist. Hins vegar merkir ÁBYRGÐ þá staðreynd að bind- indismenn sýna ábyrgðartilfinningu með að velja bindindi á áfengi sem lífsstefnu. Við gerum okkur grein fyrir því að margir neyta áfengis, en þó ekki aðeins vegna eigin ákvörðunar heldur vegna þrýstings frá umhverfinu. Það er erfitt að standa einn bindindismaður í hópi kunningja sem neyta áfengis og það þarf kjark til að segja „nei takk” þegar áfengi er boðið, því þeir sem framkvæma og hegða sér ekki alveg eins og meiri- hlutinn eru oft litnir hornauga. En höfum það hugfast að áfengið er ekki hollt og heillavænlegt veganesti þegar lagt er á lífsbrautina. Heilbrigt líf í formi útiveru og íþrótta í góðra vina hópi er mun vænlegra til lífshamingju. Þess vegna segjum við: BINDINDI BORGAR SIG Japan Astralía Nýja-Sjáland Holland ísland Danmörk Noregur V.-Þýskaland Svíþjóð Bandaríkin England Belgía 10

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.