Æskan - 01.04.1984, Síða 22
RAUÐI
KROSS
ÍSLANDS
O
HJÁLPARTÆKJABANKINN
Þegar fólk verður fyrir einhverri fötlun leitar það oft
tækja sem auðvelda því að brúa bilið milli líkamlegra
annmarka og heilbrigðs lífs. Augljóst dæmi um þetta
er veiklun í fótum, t. d. vegna beinbrots eða lömunar.
Tæki sem auðvelda þeim að komast leiðar sinnar,
sem haltur er, geta t. d. verið stafur eða hækja en ef
fætur verða mjög máttlitlir þá verður að fá hjólastól.
Þar sem líkamleg fötlun getur verið margvísleg er
mikil fjölbreytni í gerð þeirra tækja sem fólk notar sér
til aðstoöar. Sameiginlegt heiti þeirra allra er hjálpar-
tæki.
Sumir eru fæddir með einhverja líkamlega ágalla
eða fá síðar á ævi. Aðrir verða fyrir smávægilegri
óhöppum, t. d. broti á fæti vegna byltu eða bifreiða-
slyss. Þeir þurfa oft að fá einhvers konar hjálpartæki,
t. d. staf eða hækju meðan þeir eru að jafna sig. Eftir
það þurfa þeir ekki á neinum tækjum að halda.
Hve margir skyldu þeir vera sem þurfa að nota
hjálpartæki einhvern tíma á ævinni?
Um það er örðugt að fá ákveðnar tölur en giskað
hefur verið á að það sé a. m. k. einn maður af
hverjum tíu. Tíundi hver maður er miklu hærri tala en
marga grunar sem alheilbrigðir eru. Og í þessum
fjölmenna hópi hinna fötluðu er fólk á ýmsum aldri,
allt frá börnum til gamalmenna.
II /II Ll
Hjálpartækjabankinn
í sumum verslunum er leitast við að fullnægja
sérstökum þörfum okkar. Þess vegna eru til skóbúð-
ir, fataverslanir, leikfangabúðir, svo dæmi séu nefnd.
Þar sem a. m. k. tíundi hver maður þarf einhvern
tíma á ævinni á hjálpartæki að halda er eðlilegt að til
séu búðir þar sem eingöngu eru á boðstólum marg-
vísleg hjálpartæki. Á landinu er nú einungis til ein búð
þar sem verslunarfólkið er sérhæft í að verða við
óskum þeirra sem þurfa hjálpartæki. Þar sem afráðið
var að í þessari búð mætti einnig fá hjálpartæki að
láni þá var ákveðið að velja versluninni heitið banki.
Þess vegna nefnist hún Hjálpartækjabanki. Hann -
bankinn - er að Nóatúni 21, Reykjavík.
í þessari grein ætlum við að veita lesendum ÆSK-
UNNAR nokkurn fróðleik um þennan banka hjálpar-
tækja:
Fyrir 14 árum, árið 1967, stakk þáverandi fram-
kvæmdastjóri hjá Rauða krossi íslands upp á því að
komið yrði upp hjálpartækjabanka. Mörgum þótti
hugmyndin góð en fáir vildu verða til þess að fram-
kvæma hana. Þess vegna varð það ekki fyrr en árið
1975 að samningar tókust um það milli Rauða kross
íslands og Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, að
þessi tvö samtök sameinuðust um að stofna fyrirtæk-
Björgúlfur Andrésson forstööumaður við afgreiðslustörf.
22