Æskan - 01.04.1984, Page 26
Hér kemur nýtt land, sem þið eigið nú að þekkja.
Hvað heitir þetta land? Svör berist fyrir 20. maí. Fimm
bókaverðlaun eru í boði.
Náttúra landsins er að mjög miklum hluta fjöllótt. Er
um 60% landsvæðisins hálent. Alls er landið 83.900
km2. íbúatala er rúmar 7 milljónir. Vetraríþróttir eru
mikið stundaðar og sækja þangað oft margir íslending-
ar. í landinu er lýðræðisleg stjórnarskipun á vestræna
vísu. Landinu er skipt í níu hluta. Höfuðborgin er fræg
fyrir tónlistarlíf og fyrsti stafur í nafni hennar er V.
Þjóðhátíðardagur er 29. október.
Hvaða land er þetta?
HVAÐ HEITIR LANDIÐ?
í frásögn Æskunnar af fundi í barnastúkunni Kvisti
er nokkur ónákvæmni þar sem minnst er á Ijóðið Hér
er ég lítill templar.
Kvæðið er norskt að uppruna. í söngbók fyrir
barnastúkurnar norsku, Syng med oss, segir að Ijóð-
ið sé eftir litla stúlku. Hún er ekki nefnd með nafni en
hins vegar nefnir hún barnastúku sína „Hábets hær“
eða liðsmenn vonarinnar.
Halldór Kristjánsson íslenskaði þetta kvæði og í
þýðingu hans er það svona:
Hér er ég, lítill templar, í íslands varnarher,
sem ætlar sér gegn Bakkusi að verjast,
því þar er skæður óvinur sem illa að mörgum fer
og ungu fólki sæmir gegn að berjast.
Hann mestur er að blekkja og margan leikur grátt,
og margur hefur vin sinn í þíslum hjá honum átt,
því frjálsir menn eru þar í þrældóm hnepptir.
Og þegar ég verð eldri og eigin húsum ræð
ég útiloka vín frá dyrum mínum.
Svo vímuefnin ýmsu sem verða mörgum skæð
þar valdi aldrei leiðindunum sínum.
Því þar er verndað svæði og þar er maður frjáls,
og þar er aldrei víma sem glepur vilja sjálfs,
í frjálsu húsi er fólk með réttu ráði.
Getur þú fundið á myndinni fuglinn með langa
og hvassa nefið. Það var nefnilega hann sem
setti gat á loftbelginn.
FELUMYND
26