Æskan - 01.04.1984, Page 30
Hænon fer um fjollið
15. - Ég get ekki leyft þér aö fara til hennar. En
settu mat í sekk. Ég skal fara með hann til móður
þinnar, sagði risinn. Stúlkan gerði það. Hún lét
fyrst heilmikið af gulli og silfri í sekkinn en ofan á
það lagði hún mat.
16. - Nú er sekkurinn tilbúinn, sagði hún við
bergrisann. Hún tók af honum loforð um að líta
ekki í sekkinn. Stúlkan fylgdist með risanum um
rifu í berginu. Ekki var hann kominn langt er
hann nam staðar.
17. Sekkurinn er svo þungur að ég ætla að
gæta að því hvað í honum er, sagði risinn, og
hugðist leysa bandið. En þá hrópaði stúlkan: Ég
sé til þín! - Undarleg eru augu þín, sagði risinn
og þorði ekki fyrir sitt litla líf að reyna þetta aftur.
18. Er bergrisinn var kominn að húsi ekkjunnar
kastaði hann sekknum inn um dyrnar. Hér hefur
þú mat frá dóttur þinni. Henni líður vel, sagði
hann. Gamla konan varð yfir sig undrandi þegar
hún sá hvað í sekknum var.
Skemmtileg myndasaga í litum