Æskan - 01.04.1984, Side 40
Kirkjubær, hið forna biskupssetur.
KIRKJUBÆR
Kirkjubær, hið forna biskups-
setur Færeyja, er syðst á Straum-
ey, og er 11 kílómetra leið þangað
frá Þórshöfn.
Enginn staður á Færeyjum er
jafn auðugur af minjum liðinna tíma
og Kirkjubær. í Kirkjubæ ergotnesk
dómkirkjutótt úr færeysku blágrýti,
og er áhrifamikið að sjá hana þarna
í ósnortinni, villtri náttúrunni, þar
sem mannshöndin hefur svo litlu
fengið áorkað til breytinga eða
ræktunar. Erlendur biskup mun
hafa byggt kirkjuna, en hún var
aldrei fullgerð. Veður og vindar
hafa blásið gegnum opna glugga
hennar og víðar dyr um aldaraðir.
Gotneska steinskrautið er veðrað
og máð. Þó hefur náttúrunni ekki
tekist að helga sér á ný þennan
minnisvarða, sem miðaldirnar hafa
reist sér í gotneskum stíl, úr fær-
eyskum steini. Sóknarkirkja sú,
í Færeyjaferðinni árið 1966 var útvarp
Færeyja heimsótt og viðtal tekið við
ferðalangana. Hér sjást þær Ann og
Margrét með útvarpsstjóranum Níels
Juel Arge.
sem stendur þar enn, er frá miðöld-
um. Þar hefur farið fram á síðari ár-
um mikill uppgröftur og margar
fornminjar fundist, sem varpað
hafa Ijósi yfir staðinn. Enn eru leifar
Verðlaunahafar Flugfélags íslands og
Æskunnar til Færeyja árið 1966. Hér eru
verðlaunahafarnir þær Ann og Margrét
á flugvellinum í Vogey.
miðaldakirkjunnar sýnilegar í
Kirkjubæ.
Bæjarhúsin þar eru mjög gömul,
og undir þeim eru steinkjallarar
biskupssetursins forna. Alls staðar
eru í jörðu leifar frá gullöld Kirkju-
bæjar. Gamalt stokkahús stendur
enn eftir af timburbyggingum mið-
aldanna. Það er gert úr digrum trjá-
bolum.
Á lofti bæjarhúss er stórt her-
bergi fullt af gömlum bókum, og má
þar sjá margar íslenskar bækur,
sem prentaðar voru að Hólum,
ennfremur er þar baðstofa, sem tal-
in er vera yfir 900 ára gömul, og nú
álitin vera elsta timburhús í heimi-
í fjallinu ofan við Kirkjubæ er hell-
isskúti, sem nefnist Sverrishola.
Munnmæli þar á staðnum segja, að
Sverrir konungur hafi fæðst þar á
laun. Kirkjubær er langstærsta bú-
jörð Færeyja.
.A
40