Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1984, Síða 41

Æskan - 01.04.1984, Síða 41
Drengir í þjóöbúningum. FÆREYSKI DANSINNJ Mikið orð fer af færeyska dansin- Urn og það að verðleikum. Saga annarra þjóðdansa er skömm, nær 1 mesta lagi yfir fáeinar aldir, og uPpruni þeirra er harla vafasamur. n færeyski hringdansinn er bein- lnis afkomandi og framhald hins /,®9a hringdans miðaldanna. ann er sprottinn upp í Frakklandi. aðan breiddist hann hratt út, og á 3-. 14. og 15. öld steig öll Evrópa Paö, sem nú er nefnt færeyskur ans, auðvitað með ýmsum til- ,ri9öum. Síðan hvarf hringdansinn Ur tisku, aðrir dansar leystu hann af hólmi, og eftir siðaskiptin börðust prestar mótmælenda víða á móti honum. Sagnir herma, að með því móti hafi honum verið útrýmt á Orkneyjum og Hjaltlandi. Hann dó út á íslandi á 18. öld (vikivakar). En í Færeyjum liföi hann í friði. Nú er hann nefndur færeyskur dans - auðvitað ekki ranglega. En hann er meira, jafnframt því sem hann er þjóðdans Færeyinga. Hann er kafli í menningarsögu Evrópu. Hið stórfellda menningargildi færeyska dansins liggur í því, að hann er söngur, auk þess að vera dans. Flestir aðrir dansar eru stign- ir eftir hljóðfalli hljóðfærasláttar, en færeyski hringdansinn er stiginn eftir þjóðkvæðum, söngljóðum. Já, meira að segja má fullyrða, að kvæðin eru aðalatriðið, og dansinn er undirleikur frásagnarinnar. Líta verður á dansinn frá þessu sjónar- miði. Hann sýnist sjálfur ekki vera sérlega merkilegur, sömu sporin upp aftur og aftur, en efni kvæðis- ins veitir þeim þýðingu. Hér er ágætt dæmi um félagsanda mið- aldanna og samkvæmisskyn. Einn maður eða fáir syngja sögu, en hin- ir taka þátt í frásagnarefninu með danssporum og með því að syngja viðlag sögunnar. Dansinn og efni kvæðisins eru að sjálfsögðu í mjög nánu sambandi hvort við annað. Dansað er hægt, ef sagan er harm- saga, ef sagt er frá orustu, er stigið fast til jarðar, en hoppað eftir fjör- ugu hljóðfalli, ef eitthvað gerist skemmtilegt. Dansinn verður sífellt túlkun geðbrigða áheyrandans, já, sjálfur æðasláttur framsögunnar. Eftir því sem dansinn er betri, renn- ur hringurinn betur saman í heild, sameinast í mikla heildarveru, tigna hrynjandi. Það er ekkert rúm fyrir tilhneigingu einstaklingsins að láta bera á sér. Kvæðið er aðalatriðið, dansinn er mikilfenglegur, háttbundinn und- irleikur áheyrendanna. Það liggur meira að segja nærri að telja fær- eyska dansinn sérstaka aðferð við að segja fram kvæði. Víst er það að minnsta kosti, að hann er miklu fremur bókmenntalegt fyrirbrigði en dansmenntarlegt. Um öll Norður- lönd hefur hann verið nátengdur þjóðkvæðabókmenntum, sem nú- tímamenn í löndunum telja meðal dýrmætustu þjóðlegra verðmæta. ÆSKAN 41

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.