Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1984, Page 44

Æskan - 01.04.1984, Page 44
ÆSKAN Aðdáendaklúbbar Mér finnst Æskan mjög góö. Hún batnar alltaf meira og meira. Mig langar að fá heimilisföng Iron Mai- den, AC/DC og Police. Marinó Heimilisföngin sem þig langar til að fá eru þessi: Iron Maiden PO Box 391 London W4 2LZ England AC/DC 18 Watson Close Bury St. Edmunds Suffolk England The Police Codrington Mews 41 b Blenheim Crescent London W11 2EF Boy George Kæri Æskupóstur. Ég vil byrja á því að þakka gott blað. Mig langar að spyrja um svo- lítið. 1. Hvað hefur Culture Club gefið út margar stórar plötur? 2. Ertu ekki sammála því að birta plakat af Boy George eða við- tal við Culture Club af þvi að Boy George var poppstjarna ársins 1983? Þökk fyrir birtinguna. Boy George-aðdáandi í Ólafsfirði. Það munu vera til tvær stórar plötur með Culture Club. Viðtal, og þó kannski frekar veggmynd af Boy George eða Culture Club, er vel athugandi. En hvers vegna segir þú að Boy George hafi verið popp- stjarna ársins 1983? Paul Young Kæri Æskupóstur! Ég vil byrja á að þakka fyrir gott blað. Veit Æskan um heimilisfang aðdáendaklúbbs Paul Young? Helga P. s. Þakka birtinguna ef þetta verður birt. Ef þú ert að hugsa um að skrifa til aðdáendaklúbbs Páls „Unga“ þá er utanáskriftin: Paul Young Fan Club 17 Soho Square London W1 England Bréf frá Skagafirði Kæra Æska í fyrsta tölublaði þessa árs var mikið skrifað um Tomma og Jenna og nú ætla ég að blanda mér í um- ræðuna. Ég ráðlegg þeim sem eru á móti þeim að slökkva á sjónvarp- inu. Vissulega er svolítið um ofbeldi í þáttunum en samt eru þeir bráð- skemmtilegir. Hér koma svo nokkrar spurning- ar: 1. Hvers vegna kemur Æskan ekki út í hverjum mánuði? 2. Því er Æskupósturinn ekki lengri fyrst það berast svona mörg bréf? 3. Ef Æskan efndi til teikni- myndasamkeppni; yrðu þá settar sérstakar reglur? 4. Hefur bréf eins og þetta mikla möguleika á að verða birt? Þið mættuð birta fleiri plaköt. Lengi lifi Æskan. Eydís Magnúsdóttir. Svör: 1. Þá yrði árgjaldið miklu hærra og við þyrftum að fjölga starfs- mönnum við blaðið. 2. Það er rétt; mörg bréf berast, en þau fjalla oft um sama efni. Les- endur mættu gjarnan skrifa okkur meira um sjálfa sig, segja t. d. frá skólanum sínum og félagslífinu og fréttir úr heimabyggð sinni, ef þeir búa úti á landi. Þá væri athugandi að gefa Æskupóstinum meira rúm í blaðinu. 3. Dómnefndin yrði að ákveða þær reglur. 4. Þú sérð það. Bubbi. Bowie. Kizz og Nína Hagen Kæri Æskupóstur Fyrst ætla ég að þakka gott blað. Er til einhver aðdáendaklúbbur Bubba? Þarf að skrifa á ensku þeg- ar maður skrifar aðdáendaklúbbum erlendis. Hvað er heimilisfang hjá aðdáendaklúbbi David Bowie, Kizz og Nínu Hagen? Þakka birtinguna Fanney Ósk Það er gaman að þér skuli líka svona vel við blaðið. Því miður hafa umboðsaðilar Bubba ekki komiö reglulegum aðdáendaklúbbi á fót. Það væri þó ekki vanþörf á. En þu gætir reynt að fá upplýsingar um Bubba hjá útgáfufyrirtækjunum 44

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.