Æskan - 01.04.1984, Síða 44
ÆSKAN
Aðdáendaklúbbar
Mér finnst Æskan mjög góö. Hún
batnar alltaf meira og meira. Mig
langar að fá heimilisföng Iron Mai-
den, AC/DC og Police.
Marinó
Heimilisföngin sem þig langar til
að fá eru þessi:
Iron Maiden
PO Box 391
London W4 2LZ
England
AC/DC
18 Watson Close
Bury St. Edmunds
Suffolk
England
The Police
Codrington Mews
41 b Blenheim Crescent
London W11 2EF
Boy George
Kæri Æskupóstur.
Ég vil byrja á því að þakka gott
blað. Mig langar að spyrja um svo-
lítið.
1. Hvað hefur Culture Club gefið
út margar stórar plötur?
2. Ertu ekki sammála því að
birta plakat af Boy George eða við-
tal við Culture Club af þvi að Boy
George var poppstjarna ársins
1983?
Þökk fyrir birtinguna.
Boy George-aðdáandi
í Ólafsfirði.
Það munu vera til tvær stórar
plötur með Culture Club. Viðtal, og
þó kannski frekar veggmynd af Boy
George eða Culture Club, er vel
athugandi. En hvers vegna segir
þú að Boy George hafi verið popp-
stjarna ársins 1983?
Paul Young
Kæri Æskupóstur!
Ég vil byrja á að þakka fyrir gott
blað. Veit Æskan um heimilisfang
aðdáendaklúbbs Paul Young?
Helga
P. s. Þakka birtinguna ef þetta
verður birt.
Ef þú ert að hugsa um að skrifa
til aðdáendaklúbbs Páls „Unga“ þá
er utanáskriftin:
Paul Young Fan Club
17 Soho Square
London W1
England
Bréf frá Skagafirði
Kæra Æska
í fyrsta tölublaði þessa árs var
mikið skrifað um Tomma og Jenna
og nú ætla ég að blanda mér í um-
ræðuna. Ég ráðlegg þeim sem eru
á móti þeim að slökkva á sjónvarp-
inu. Vissulega er svolítið um ofbeldi
í þáttunum en samt eru þeir bráð-
skemmtilegir.
Hér koma svo nokkrar spurning-
ar:
1. Hvers vegna kemur Æskan
ekki út í hverjum mánuði?
2. Því er Æskupósturinn ekki
lengri fyrst það berast svona mörg
bréf?
3. Ef Æskan efndi til teikni-
myndasamkeppni; yrðu þá settar
sérstakar reglur?
4. Hefur bréf eins og þetta mikla
möguleika á að verða birt?
Þið mættuð birta fleiri plaköt.
Lengi lifi Æskan.
Eydís Magnúsdóttir.
Svör:
1. Þá yrði árgjaldið miklu hærra
og við þyrftum að fjölga starfs-
mönnum við blaðið.
2. Það er rétt; mörg bréf berast,
en þau fjalla oft um sama efni. Les-
endur mættu gjarnan skrifa okkur
meira um sjálfa sig, segja t. d. frá
skólanum sínum og félagslífinu og
fréttir úr heimabyggð sinni, ef þeir
búa úti á landi. Þá væri athugandi
að gefa Æskupóstinum meira rúm í
blaðinu.
3. Dómnefndin yrði að ákveða
þær reglur.
4. Þú sérð það.
Bubbi. Bowie. Kizz
og Nína Hagen
Kæri Æskupóstur
Fyrst ætla ég að þakka gott blað.
Er til einhver aðdáendaklúbbur
Bubba? Þarf að skrifa á ensku þeg-
ar maður skrifar aðdáendaklúbbum
erlendis. Hvað er heimilisfang hjá
aðdáendaklúbbi David Bowie, Kizz
og Nínu Hagen?
Þakka birtinguna
Fanney Ósk
Það er gaman að þér skuli líka
svona vel við blaðið. Því miður hafa
umboðsaðilar Bubba ekki komiö
reglulegum aðdáendaklúbbi á fót.
Það væri þó ekki vanþörf á. En þu
gætir reynt að fá upplýsingar um
Bubba hjá útgáfufyrirtækjunum
44