Æskan - 01.04.1984, Page 45
Steinum hf. og Safari Rec-
0rds. Þú færö símanúmer þeirra hjá
uPplýsingum, 03.
Heimilisfang aðdáendaklúbbs Da-
vid Bowie er:
Bowie Friends
104 St. John’s Wood Terrace
London NW8
England
Heimilisfang aödáendaklúbbs Kizz
er:
Kizz Army
PO Box 430
London SW10
England
j~Jeimilisfang aödáendaklúbbs Nínu
Hagen er:
Nína Hagen Fan Club
1801 Century Park West
Los Angeles, CA 90067
U. S .A.
Paö er heppilegast að skrifa á
ensku til þeirra aödáendaklúbba
sem eru starfræktir í enskumæl-
andi löndum. Til danskra aðdá-
endaklúbba er best að skrifa á
dönsku. Til þýskra á þýsku o. s. frv.
Skrifið meira um
'Þróttir
E|skulegi Æskupóstur
^9 vil byrja á því að þakka Æsk-
unni fyrir fróðlegt og skemmtilegt
ejni en samt finnst mér að það ætti
a° vera meira um íþróttir í henni.
Svo langar mig að spyrja um það
. Vort Æskan viti nokkuð um heimil-
laf°ng hinna frægu fótboltakappa
Maradona og Zicos. Ég yrði þakk-
'atur ævilangt.
Og svona í lokin er hérna einn
randari: „Haldið þið að þetta sé
e'n röð,“ æpti kennarinn að nem-
e.ndum sínum. „Komið hingað og
sjáið hvað þetta er skakkt."
Skúli B. G.
^akka þér fyrir bréfið, Skúli. Við
erum sammála þér um að það þarf
a skrifa meira um íþróttir í Æskuna
9 stefnum að því að svo verði. Því
miður hefur okkur ekki tekist að
hafa upp á heimilisföngum Mara-
dona og Zicos. Viti einhver lesandi
þau má hann gjarnan skrifa okkur
og við skulum birta þau. Þeir félag-
arnir fá svo mikið af bréfum að það
eru ekki miklar líkur á því að þeir
svari þér. En það má svo sem
reyna. Brandarinn hjá þér var
ágætur.
Ljósmyndaskóli
Ég vil eins og aðrir þakka gott
blað. Mér finnst að Ijósmyndaþáttur
eigi að vera í tengslum við Mynd
mánaðarins. Svo langar mig að
spyrja einnar spurningar: Ég er níu
ára og mig langar mjög mikið til að
fara í einhvern Ijósmyndaskóla.
Veist þú um einhvern slíkan?
Bless.
S. A. J.
Það er vel athugandi að hafa
Ijósmyndaþátt í Æskunni. Við vitum
ekki um neinn Ijósmyndaskóla hér
á landi. Ef til vill getur þú lært mikið
á því að spyrja vanan Ijósmyndara
hvernig hann fer að og eins ættirðu
að æfa þig á myndavél. Af og til er
skrifað um Ijósmyndun í íslensk
blöð og tímarit. Þú ættir að gefa því
gætur.
Hrædd við
kjarnorkustríð
Kæra Æska
Þú varst að hvetja okkur til að
skrifa og segja lífsskoðanir okkar.
Ég hef mestar áhyggjur af því
þessa stundina að það eigi eftir að
koma kjarnorkustríð. Það yrði alveg
hræðilegt. Svo eru milljónir barna
að deyja í viku hverri úr hungri í
útlöndum. Væri ekki nær að nota
þá peninga sem fara í að framleiða
kjarnorkuvopn til að kaupa mat
handa þessum börnum? Ég er viss
um að margir eru á sama máli og
ég.
Ég sé ekki nema eina leið til að
hafa áhrif á það að ekki verði kjarn-
Hvar er farþeginn, sem kom með vagn
inum?
orkustyrjöld. Það er að biðja til
Guðs. Hann getur örugglega afstýrt
því ef hann vill. Við skulum biðja
hann um að gefa okkur vit til þess.
Kær kveðja,
Anna, 13 ára.
Brandarar
Kæri Æskupóstur
Mig langar að koma á framfæri
tveim bröndurum. Þeir eru svona:
Fallega, rauðhærða stúlkan kom
inn í fataverslunina og spurði versl-
unarstjórann:
- Mætti ég máta rauðu dragtina
þarna í glugganum?
- Að sjálfsögðu, svaraði versl-
unarstjórinn. Það gæti aukið við-
skiptin.
Læknirinn: „Fékkstu þér glas af
appelsínusafa eftir baðið eins og
ég sagði þér að gera?“
Sjúklingurinn: „Nei, læknir. Eftir
að ég var þúinn með þaðið hafði ég
ekki nokkra lyst á appelsínusafa."
Kær kveðja,
Bryndís K. Árnadóttir,
Akureyri.
45