Æskan - 01.04.1984, Page 46
Viðtal: Eðvarð Ingólfsson
Myndir: Heimir Óskarsson
RÁS 2:
Langþráð tónlistarútvarp
Það var unnendum poppmúsíkur mikið fagnað-
arefni þegar rás 2 tók til starfa 1. desember sl.
Þessi nýja stöð markar tímamót í hálfrar aldar
sögu útvarpsins því nú geta hlustendur í fyrsta
sinn valið milli tveggja stöðva. Óskir um að létt
tónlist yrði send út á sérstakri rás eru ekki nýjar
af nálinni. Vinsældir kanaútvarpsins á Suðvest-
urlandi sýndu að grundvöllur væri fyrir stofnun
slíkrar rásar. Það hefur li'ka komið á daginn; rás 2
nýtur mikilla vinsælda, ekki aðeins hjá unga fólk-
inu heldur líka hjá því eldra.
Á rás 2 er leikin létt tónlist frá morgni til kvölds.
Rúmlega þrjátíu dagskrárgerðarmenn sjá um
þætti með fjölbreyttri tónlist, rabba við hlustend-
„Stundum er þögnin
besta tónlistin"
segir Páll Þorsteinsson
Páll Þorsteinsson er einn þriggja sem sjá um morg-
unútvarpið á rás 2 og samstarfsmenn hans kalla
hann leiðtogann í hópnum. Páll er löngu kunnur fyrir
störf sín í útvarpi. Hann sá um syrpuþætti í nokkur ár
á rás 1, var við morgunútvarp einn vetur, var þulur
útvarpsins eitt sumar og áfram mætti lengi telja.
Páll vann ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni, forstöðu-
manni rásar 2, við undirbúning rásarinnar. Hann sá
m. a. um að ráða fólk til starfa og prófa það.
„Við Morgunþáttarmenn mætum til vinnu á níunda
tímanum til að leggja síðustu hönd á þáttinn og setja
okkur í stellingar fyrir útsendingu," sagði Páll þegar
blaðamaður forvitnaðist um vinnubrögð þeirra fé-
laga.
- Er þetta fullt starf hjá ykkur?
„Já, en allir höfum við þó aukastarf. Það er eins
með okkur og marga aðra í þjóðfélaginu: Það lifir
enginn lengur af einu starfi."
- Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Yfirleitt um sjö-leytið. Ég vil vera vel vaknaður
þegar útsending hefst kl. 10. Röddin er alltaf síðust
að vakna. Ég byrja morguninn á því að fá mér kaffi,
les blöðin og fer yfir handritið.“
- Þá hlýtur þú að sofna snemma á kvöldin?
„Já, ég sofna oftast fyrir miðnætti."
ur milli laga, fá gesti í heimsókn og brydda upp á
ýmsum nýjungum. Þeir leggja ríka áherslu á að
vera í sem bestum tengslum við hlustendur, taka
mið af tónlistarsmekk þeirra og óskum um efni.
70% landsmanna heyra útsendingar rásar 2 en
næsta sumar er gert ráð fyrir að hún nái eyrum
allra landsmanna að undanskiidum íbúum á Suð-
austurlandi. Geta þá fleiri notið Ijúfra tóna og
annars efnis sem kemur frá henni.
Enginn vafi leikur á því að rás 2 er spor í rétta
átt í lýðræðisþjóðfélagi. Hlustendur vilja geta val-
ið um stöðvar og hlustað á efni við sitt hæfi á
meðan þeir taka þátt í að halda þjóðarskútunni á
floti.
Hinir eldhressu stjórnendur Morgunþáttarins: Ásgeir Tómas-
son, Páll Þorsteinsson og Jón Ólafsson.
Páll sagði að hann væri að vísu svonefndur
B-maður (kvöldglaður - andstætt við að vera morg-
unhani) en gerði sig að A-manni. Þegar hann var j
morgunútvarpinu á rás 1 þurfti hann að vakna kl. 5 á
morgnana svo að þetta er ekkert nýtt fyrir honum-
Um helgar snýr hann svefntímanum við en þá er
hann kynnir á söngskemmtunum í einu veitingahúsi
borgarinnar. Hann sagði að sér gengi ágætlega að
byrja morgunverkin aftur. - Hann var næst spurðui"
að því hvort þeir Morgunþáttarmenn reyndu að gefa
öllum til hæfis í þætti sínum.
46