Æskan - 01.04.1984, Blaðsíða 47
Nýja útvarpshúsið, Hvassaleiti 60. Þar er rás 2 til húsa.
”£g held aö við getum aldrei gert öllum til geðs,“
Sa9ði hann. „Við leikum fyrst og fremst popp- og
r°kktónlist, gömul og nýleg, vinsæl lög.“
~ Færðu aldrei sjálfur leið á tónlistinni þegar hún
dynur í eyrunum á þér daginn út og inn?
”Jú, það getur komið fyrir þegar maður er þreyttur
°9 illa fyrir kallaður. Þá þráir maður helst að hlusta á
Pögnina. Hún er stundum besta tónlistin. Þá er af-
skapiega gott að „stinga sér ofan í“ fjöru og hvíla
hu9ann. Maður hefur gott af því.“
" Þið setjið vikulega saman vinsældalista í
Paattinum ykkar. Hvernig fer valið fram?
”Við bjóðum hlustendum að hringja í síma 38500
J71111' kl. 12 og 14 á fimmtudögum og kjósa vinsælasta
'a9 vikunnar. Það er mikið hringt og kjósendur eru allt
rá fjögurra ára aldri til fertugs."
~ Að lokum. Líst þér vel á framtíð rásar 2?
”úá, það er staðreynd að hún nýtur mikilla vin-
s®lda hjá meirihluta hlustenda. Auðvitað koma alltaf
UPP einhverjar óánægjuraddir og það ber miklu
^^ifa á þeim en hinum ánægðu. Þeir síðarnefndu
eru Þögli meirihlutinn."
»Alltaf gaman að fást við ný störf“
*~eópold Sveinsson tekinn tali
^ rnánudögum milli kl. 14 og 15 er þátturinn Dæg-
^lu9ur í umsjá Leópolds Sveinssonar. Leópold er
ára og enginn nýgræöingur í plötusnúðastarfinu.
. rá unglingsaldri hefur hann stjórnað skífuþeyturum
e niörgum diskótekum. í vetur hefur hann flogið til
^estmannaeyja um hverja helgi og verið plötusnúður
skemmtistaðnum Skansinum. Þykir eyjaskeggjum
yo mikið til Leópolds koma að þeir víla ekki fyrir sér
d°rga undir hann flugfarið báðar leiðir.
”l Dægurflugum leik ég yfirleitt nýrri tónlist en
r^nnt heyrist á rásinni," sagði Leópold um þáttinn.
" 9 fæ plötur sendar beint að utan og einnig fæ ég
°kallaðar prufuplötur hjá hljómplötuinnflytjendum.
u á dögum er það farið að tíðkast að tvær útgáfur
u gerðar af sama laginu og reyni ég að komast yfir
aer báðar og leika þær.“
- Hvað ertu lengi að undirbúa einn þátt?
„Ætli það séu ekki rúmir sex tímar. Það fer þó
nokkur tími í að hlusta á plötur og gera upp á milli
laga. Svo tekur sinn tíma að ganga frá handriti."
- Hvaða eftirlætis-hljómsveitir átt þú sjálfur?
Leópold hikar aðeins en segir svo: „Ætli það séu
ekki Genesis og Supertramp."
-Hlustarðu sjálfur á rás 2?
„Já, töluvert. Þá helst seinni part dags.“
- Ertu hlynntur frjálsum útvarpsrekstri?
„Já, ég bíð spenntur eftir honurn."
- Tekurðu gagnrýni nærri þér?
„Ég hlusta ekki á gagnrýni og heyri hana ekki
nema hún sé málefnaleg. Ég vil alls ekki að fólk taki
öllu sem það heyrir á rásinni sem sjálfsögðum hlut.
Það er æskilegt að gagnrýna það sem miður fer en
gera það þá af skynsemi og málefnalega."
- Finnst þér gaman að vinna á rás 2?
„Mjög gaman. Það er alltaf gaman að fást við ný
störf.“
- Ætlarðu að starfa þarna lengi enn?
„Nei, ég stefni á nám í fjölmiðlafræðum í Englandi
næsta vetur,“ sagði Leópold Sveinsson að síðustu
og mátti ekki vera að því að tala við okkur lengur.
Hann átti að fara í útsendingu eftir fimm mínútur.
Leopold Sveinsson.
47