Æskan - 01.04.1984, Page 50
... að föðurbróðir Bubba Mort-
hens, Haukur Morthens, var vin-
sælasti poppari landsins fyrir
20-30 árum eða svo?
... að Crass er ekki einungis vin-
sælasta pönkhljómsveit Breta,
heldur er Crass einnig stór
kommúna, sem gefur út bækur,
blöð, kvikmyndir og fleira auk
hljómplatna?
... að djamaíski reggísöngvar-
inn Linton Kwesi Johnson vann
fyrir sér á árum áður sem blaða-
maður? Hann var m. a. með
fasta dálka í vinsælustu popp-
blöðum Breta, Melody Maker og
New Musical Express.
... að bandaríski háðfuglinn og
gítarsnillingurinn Frank Zappa
er baráttumaður gegn áfengis-
og eiturlyfjaneyslu? Hann hefur
m. a. haldið fyrirlestra í skóium
um skaðsemi vímuefna.
... að í dönsku poppbokinni
Rock Nu eru íslensku hljóm-
sveitirnar Purrkur Piilnikk og
Þeyr taldar í hópi merkustu ný-
bylgjusveita heims. Þar eru þær í
félagsskap með hljómsveitum á
borð við Clash, Art Bears, Pere
Ubu, Dead Kennedys o. fl.
... að gítarsnillingurinn Fred
Frith, sem hefur m. a. spilað með
Henry Cow, Residents, Brian
Eno, Art Bears, Robert Wyatt
o. fl., er sprenglærður fiðlu-
leikari? Hann hóf strangt fiðlu-
nám aðeins fjögurra ára og hélt
því áfram langt fram á unglings-
ár.
VISSIR ÞU
)
'oo
í tilefni 100 ára afmælis Góð-
templarareglunnar á íslandi 10.
janúar sl. lét stúkan ísafold Fjall-
konan nr. 1 á Akureyri gera ýmsa
minja- og söfnunargripi, m. a.
7Ook9>
minnispening með mynd af Frið-
birni Steinssyni, er það sett,
bæði gull og silfur og er upplag
mjög lítið. Þá voru gefin ú: um-
slög með mynd af Friðbjarnar-
húsi og Friðbirni Steinssyhi>
voru þau stimpluð á afmælisdag*
inn og eru öll uppseld.
í vor mun Póstmálastjórn gefa
út frímerki í tilefni afmælisins-
Verður það með mynd af Frib'
bjarnarhúsi. Þá verða seld núm'
eruð umslög með álímdum trl'
merkjum og verður upplag mjö9
takmarkað.
Þeir sem hafa áhuga á því að
eignast peningana eða umslögin
eru vinsamlegast beðnir að hafa
samband við Svein KristjánS'
son, sími 96-24360 eða Gu®'
mund Magnússon, sím1
96-22668, Akureyri.
í TILEFNI 100 ÁRA AFMÆLISINS
50