Æskan - 01.09.1985, Page 20
I
o Föndur
Dýrin stór og smá
Um daginn rákumst við á skemmtilega bæklinga sem
sýna hvernig nota má hólka innan úr pappírsrúllum
til að búa til ótalmargt það sem sniðugum föndrara
dettur í hug. Bæklingarnir eru frá fyrirtæki sem fram-
leiðir Edet-pappírsvörur en þær fást víða í verslun-
um. Hólkarnir eru allir litaðir, — gulir, rauðir, græn-
ir og bláir eins og regnboginn! Það auðveldar að gera
úr þeim margs konar hluti.
Okkur finnst ekki þörf á að lýsa því hvernig fara
skal að. Þið sjáið á myndunum hvernig pappahólk-
arnir eru klipptir til, og tengdir saman með klemm-
um, garni eða lími. Stundum þarf að nota aukahluti,
t.d. við að gera skíðamanninn, en þeir eru víðast hvar
við höndina. Þið málið auðvitað líka til að gæða dýrin
lífi, gætið ykkar aðeins á að gera tígrisdýrið og slöng-
una ekki svo grimmdarleg að apinn og gíraffinn verði
skelkaðir!
Sjálfsagt er fyrir unga lesendur að fá mömmu,
pabba eða eldri systkini til að leiðbeina sér. Það er
líka alltaf gaman þegar fjölskyldan vinnur saman að
föndri.
20