Æskan - 01.03.1986, Síða 8
Sá elnl sem hefl
ÖRN ÁRNASON í YFIRHEYRSLU
Örn Árnason leikari er tekinn
tali að þessu sinni. Hann er einn
af þeim sem hafa skotið upp
kollinum á leiklistarsviðinu síð-
ustu ár og vakið athygli, — ekki
síst meðal yngstu kynslóðarinn-
ar. Hún fyldist spennt með hon-
um í Stundinni okkar á sínum
tíma þegar hann kom þar fram
með Eiríki Fjalari.
Síðast sáum við hann í ára-
mótaskaupinu og í þætti sínum
Glettum. Örn á ekki langt að
sækja leiklistarbakteríuna því
að faðir hans, Árni Tryggvason,
er kunnur leikari og skemmti-
kraftur.
Við mæltum okkur mót við Örn
sunnudag einn í febrúar og báðum
hann að segja okkur fyrst hvenær hann
hefði komið í þennan heim.
„Það var 19. júní 1959 í Reykjavík
og þar hef ég síðan átt heima, nema
hvað ég var í Hrísey á sumrin til 16-17
ára aldurs.“
— Var mikill munur á að vera í Reykja-
vík og Hrísey?
„Nei, ekki fannst mér það. Þetta er
sama mannlífið alls staðar. Að vísu
voru bernskuleikirnir ólíkir. í Hrísey
lék ég mér mikið í fjörunni en hér í
bænum hafði maður aftur á móti dýra-
garð úr plasti.“
— Varstu ungur þegar þú ákvaðst að
feta í fótspor föður þíns?
„Nei, það var eiginlega ekki fyrr en
árið sem ég byrjaði í Leiklistarskóla
íslands, 1978. Ég hugsaði ekki mikið
um framtíðarstarfið á unglingsárun-
um. Líklega hefur mig helst langað til
að verða smiður og kannski skemmti-
kraftur að aukastarfi. En svo slysaðist
ég inn á leiklistarnámskeið hjá Helga
Skúlasyni og eftir það ákvað ég að
sækja um í Leiklistarskólanum.“
— Var ekki erfitt að komast inn í
skólann?
„Jú, það voru 75 umsækjendur e*1
aðeins 8 hrepptu hnossið. Það vaf
mikil spenna í kringum þetta því að
við urðum að fara í hæfnispróf sern
stóð í hálfan mánuð.“
— Gerðirðu þér mikiar vonir um að fa
inngöngu?
„Auðvitað lifði maður í voninni um
að detta í lukkupottinn - en engu 3°
síður bjó ég mig undir að verða fyr|r
áfalli. Sumir eru lengi að ná sér ef þe'r
heltast úr lestinni því að þeir haft
kannski ekki haft aðrar áætlanir 2
prjónunum en að verja vetrinum 1
leiklistarnám.“
— Hvernig lagðist svo námið í þig?
„Ég var dálítið skrítinn fyrsta árið-
vissi eiginlega ekki hvernig ég átti að
taka á þessu. Ég hafði áður gengið
með þá hugmynd að það væru deildir1
skólanum og maður gæti valið sér séf'
grein, - en svo kom annað á daginn-
Námið var mjög fjölbreytt og spann-
aði vítt svið.“
— Hafðirðu ekkert lært af pabh*1
þínum?
„Nei, einfaldlega af því að ég ætlaðj
aldrei að verða atvinnuleikari. Ég velt'
starfi hans aldrei neitt fyrir mér og
kippti mér ekkert upp við þótt hana
æfði í stofunni heima. Þetta var bara
atvinna hans í mínum huga. Svo lét eS
það alveg eiga sig að vera að þvæla*1
niðri í leikhúsi þegar hann var að asf^
þar:“ . .*
Örn er núna fastráðinn leikari vl°
Þjóðleikhúsið. Hann leikur í Kardi'
mommubænum, barnaleikritinu vi*1'
sæla. Þar er hann í hlutverki Jónatans-
eins af þrem ræningjum. Svo leika'
hann í gamanleiknum Með vífið í lúk'
unum og er að æfa um þessar mundif
leikriti Shakespears, Ríkharði 3,
sem verður frumsýnt í mars.
8