Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 9
leika ^ SpUrðÍ ®rn næst unl v'nnutí,na
Vj fð þurfum aö vinna frá 10-4 alla
rkadaga
og svo að sýna á kvöldin og
helgar,- sagðí han'n.
. {rr starfið lýjandi?
vir^ Ör^Um 'e"curum finnst það. Ef
er r'®111'8 1 5 verkum yfir árið
tai ^ Um v’^ faum fírnm sinnum
SVo^all. Loikari þarf að hugsa fyrir
æ etrúlega mörgu á einni sýningu.
'nn er a^ f*31111 se ve' u sig kom-
in a , "u 'eyti, muni allar staðsetn-
fleir^ “ sv'^mu’ auk textans og margt
'ngu nukil sPenna tengd frumsýn-
”Jú, og oft meiri þegar leikrit eru á
°rkunum að vera tilbúin til sýn-
'ngar.“
Llöfíu^rlU ''úkvæmur fyrir gagnrýni í
fú,fað er misjafnt. Jú, ég get orðið
Auð6^ ^ s'æma b'aðagagnrýni.
e- Vltað eru gagnrýnendur misjafnir
g ns °8 annað fólk og ég tek ekki mark
^ Þeim öllum. En það skiptir mig
tra^ra máli hvað fólk, sem ég ber
st til, hefur um árangur minn að
segja. Pá falla allir blaðadómar í
skuggann.“
— Hefurðu leikið alvarlegt hlutverk?
„Já, t.a.m. Harald í Skugga-Sveini
sem margir telja eitt erfiðasta ástar-
hlutverk síðari tíma. Það var ágæt til-
breyting frá því að fást eingöngu við
gamanhlutverk.“
— Ráða leikarar sjálfir hvaða hlutverk
þeir fá?
„Nei, okkur eru skömmtuð verk-
efni.“
— Hvert er skemmtilegasta hlutverk
sem þú hefur fengist við?
„Ætli það sé ekki John Smith í „Víf-
inu“. Hann er litrík og skemmtileg
manngerð.“
— Er ekki erfitt að læra textann utan
að?
„Nei, ekki finnst mér það. Ég læri
hann í skömmtum og aðallega á æf-
ingum um leið og ég æfi staðsetningar
á sviðinu. Jú, ég lít oftast yfir hann rétt
fyrir æfingar og stundum læt ég kon-
una hlýða mér yfir kafla og kafla.“
— Hvað þurfa leikarar að mæta löngu
fyrir sýningu?
„Það er skyldumæting þrem stund-
arfjórðungum áður en sýning hefst. Ef
leikari tefst eitthvað verður hann að
láta vita af sér. Annars fer leikhúsfólk-
ið að hafa áhyggjur."
Mikill dellukarl
Örn Árnason er kvæntur Jóhönnu
Kristínu Óskarsdóttur. Þau eiga
tveggja ára strák og hann heitir Óskar
Örn. Steindór Hjörleifsson leikari seg-
ir að Örn sé fyrsti íslenski leikarinn
sem hafi hlotið „Óskar“.
— Það var farið að síga á seinni hluta
samtalsins og ég spurði Örn næst hvort
honum fyndist ekki þreytandi að vera
þekktur.
„Það hefur bæði kosti og galla,“
sagði hann. „Gallarnir eru m.a. þeir
að maður getur ekki farið á skemmti-
staði án þess að verða fyrir áreitni.
Það eru svo margir sem þurfa að tala
við mann. Við hjónin erum alveg hætt
að fara á skemmtistaði.“
— Að síðustu. Einhver áhugamál utan
leiklistarinnar?
„Nei, þau eru flest horfin á braut.
Ég er eiginlega hræddur við að fá
áhuga á nokkru sérstöku því að ég er
svo mikill dellukarl. Byrji ég á ein-
hverju get ég ekki svo auðveldlega
hætt,“ sagði Örn Árnason leikari — og
með því slógum við botninn í samtalið.