Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 36

Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 36
SLEGIÐ Á ÞRÁÐINN Langar til að skrifa bók Það er ekki á hverjum degi sem Æskan kemst í kynni við 13 ára gamlan rithöfund og blaða- útgefanda. Sá sem hér um ræðir heitir Sigríður Indriðadóttir og á heima á Akranesi. Hún er nemandi í 7. bekk Grundar- skóla. Við fréttum að hún hefði í fyrravetur gefið út blað sem hét Máni. Við slógum á þráðinn til hennar og báðum hana að segja okkur frá þessu blaði. „Það kom út 4-5 sinnum,“ sagði hún. „Pabbi minn, sem rekur prent- smiðju, gaf mér pappírinn í blaðið en svo fékk ég að ljósrita það í skólanum. Upplagið var 40-60 blöð og það seldist upp í öll skiptin.“ — Fékkstu nokkra aðstoð við útgáfuna? „Nei, ég sá um þetta allt sjálf. Hins vegar studdu foreldrar mínir mig og sérstaklega afi minn, Valdimar Ind- riðason.“ — Hvers konar efni var í Mána? „Þetta voru frumsamdar smásögur, gátur, þrautir, brandarar og fleira.“ — Gekkstu í hús og seldir blaðið? „Nei, ég var of feimin til þess. Ég seldi krökkum í 5. og 6. bekk það. Máni fékk ágætar viðtökur og það hvatti mig til að halda áfram í útgáfu- starfinu." — Hefurðu samið margar smásögur? „Já, allmargar. Ég hef satt að segja ekki töluna á þeim.“ — Hvar hafa þær birst? „í blaðinu Mána og svo hef ég lesið flestar þeirra fyrir bekkinn.“ — Ertu með einhverja sögu í smíðum núna? „Já, það er framhaldssaga sem ég hef verið að lesa fyrir krakkana. Ég hef samið hana jafnóðum og er núna búin með 13 kafla. Hún fjallar um 14 ára tvíbura, strák og stelpu, kynni þeirra af öðrum krökkum - og lífinu almennt." — Kemur ástin eitthvað við sögu? Sigríður hlær við. „Já, verður það ekki að vera? Ann- ars verður sagan ekki raunveruleg. Krakkar hugsa mikið um ástina.“ — Ertu rómantísk? Smá þögn en svo segir hún: „Já, verðum við ekki að segja: Dá- lítið. Erum við ekki öll eitthvað róm- antísk?" — Skrifarðu um sjálfa þig í þessum sögum? „Nei, ekki nema að hluta. Ég hef auðvitað talsverð áhrif á hugsanir og viðhorf persónanna.“ — Dreymir þig um að gefa út bók seinna meir? „Já, ég er alveg ákveðin í því." — Hvenær ertu helst í skapi til ski i.ta? „Á kvöldin milli kl. 10-12 og sV° þegar ég dvelst hjá afa og ömrnu 1 Borgarnesi. Þá færist alltaf mikil r° yfir mig og hugurinn verður frjórri ^ venjulega.“ Hefur ást á landi og þjóð — Svo að við víkjum að öðru: Er gott eiga heima á Akranesi? .. „Það er sæmilegt, gæti samt veö betra. Ég hef ekki verið annars stað3r og hef því ekkert til samanburðar.” — Er gott félagslíf hjá unglingunum- „Það er ágætt. Böll eru haldin aðfa hverja helgi í félagsmiðstöðinni Arnar, dal og svo eru stundum bekkjarkvölð1 Grundarskóla. Einnig er hér öflnH1 íþróttalíf eins og margir vita.“ — Er eitthvað af pörum í 7. bekk? „Nei, ekkert par - ekki ennþá!' — Að síðustu. Hvaða áhugamál a(tU önnur en ritstörf? „íþróttir — þá aðallega handknat^ leik. Einnig þykir mér mjög gaman a dansa. Já, ég æfi djassballett. Svo 11C ég áhuga á bréfaskiptum og að kyI,n ast fólki. Það mætti kannski bæta vl að mér þykir afar vænt um land m1 og þjóð og hugsa mikið um mannlífta- landshætti. Ég reyni að þekkja sjá*1 mig betur en ella með því að kynna fólkinu í landinu.“ — Þakka þér fyrir samtaiið, Sigríður. og gangi þér vel á ritvellinum. 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.