Æskan - 01.06.1986, Blaðsíða 19
Fréttir úr sveitinni
Lítið félagslíf í skólanum
Frábært íþróttalíf
í Grindavík
elsku Æska!
u ætla að skrifa þér nokkrar línur
g111 ^eimabæinn minn, Grindavík. Hér
boí a^a**e8a stundaðar íþróttir; hand-
te°ll’ körfubolti, knattspyrna, blak,
Uu>s, badminton og fleiri greinar. í
0 0 anunt er oft haldið diskótek og
nokL kus' ^V° fyfir opnuðu
1 ,r hressir krakkar æðislega fé-
^ gsniiðstöð sem því miður varð að
fartta.Starfseminni' Mar8ir urðu skít-
. lr út af því. Þar var diskótek um
hverJ> helgí.
fr-, er 1 Grindavík eru 6 sjoppur og
u ært íþróttalíf. Það er sem sé nóg
aö vera fyrir unga fólkið.
1 6- bekk, Grunnskóla Grindavíkur
Hljó;
Halló!
>rnsveit á Kirkjubæjar-
klaustri
Þið
hér7.eruð aI'tafað biðja um fréttir og
9 h Þið nokkrar frá mér. Ég var í
Vetuek* Kirkjubæjarskóla á Síðu s.l.
skó,r- ^að er efsti bekkurinn í þeim
tVeja' ^ið vorum 16 á heimavistinni úr
$kaf hreppum, Álftavershreppi og
er hi artunSu- Á Kirkjubæjarklaustri
en f J°msveit sem kallar sig The Hope
1 Kirk6nni eru Þnr strakar sem allir eru
teku luðæjarskóla. Þeir léku á diskó-
að hm s*öasta vetur. Þá ætla ég ekki
a a þetta lengra í þetta sinn.
Bæ, bæ,
Jóhannes Ingi Árnason,
Snæbýli 1,
Skaftártunguhreppi
AF LANDI
Hæ, elsku Æska!
Þetta er í fyrsta skipti sem ég skrifa
þér og ég vona að bréfið verði birt.
Mig langar að segja þér frá dýrunum
okkar. Við erum með kindur, hesta og
hund. Það er vikugamalt folald hérna.
Þegar mamma folaldsins ætlaði að fara
að kasta þá var hún svo reið að hún
rak annan hest sem var á túninu hjá
henni út úr girðingunni. Það var skrít-
ið að sjá það. Núna er búið að skíra
folaldið og það heitir Drottning.
Sesselja Björg Stefánsdóttir
Breiðumörk,
Jökulsárhiíð,
Múlasýsiu
17. júní á Selfossi
Frábæra Æska!
Mig langar til að segja þér frá 17.
júní hér á Selfossi. Hátíðahöldin hóf-
ust með skrúðgöngu frá kirkjunni kl.
14.00. Ókeypis strætó gekk um bæinn
og úti á flugvelli var boðið útsýnisflug
fyrir þá sem vildu. Á íþróttavellinum
var margt um manninn því að flugvél-
arnar stráðu karamellum þar yfir. Kl.
19.00 um kvöldið var haldið barnaball
og síðar um kvöldið var ball fyrir full-
orðna fólkið. Auðvitað gerðist margt
f.eira en þetta var svona það helsta.
Kærar þakkir fyrir frábært blað,
Ein á Selfossi
Kæra Æska!
Mig langar að segja ykkur dálítið frá
sveitinni sem ég á heima í. Þetta er
lítið byggðarlag með 150 íbúa. Svo er
hér stór laxveiðiá sem heitir Laxá í
Kjós. Ég er í skóla sem heitir Ásgarðs-
skóli. Hann er fyrir krakka á aldrinum
6-13 ára. í honum er lítið sem ekkert
félagslíf fyrir krakka á mínum aldri,
þ.e. 12-13 ára. Aðeins eitt eða tvö
diskótek eru haldin á veturna.
Ungmennafélagið stendur fyrir
nokkrum spilakvöldum á veturna. Á
sumrin eru haldnar íþróttaæfingar sem
ekki nærri allir geta sótt sem vilja því
að byggðin er svo strjál. En hér er gott
að eiga heima.
Að lokum vil ég þakka fyrir gott
blað.
Addý
Dauft félagslíf á Hofsósi
Kæra Æska!
Ég vil byrja á því að þakka fyrir góð
blöð. Þar sem ég á heima er nú ekki
mikið hægt að gera. Hér eru engir
staðir þar sem unglingar geta komið
saman, nema kannski í sjoppunni.
Þess vegna hefur maður ekki mikið
annað fyrir stafni á veturna en að læra.
Ég veit um stelpu sem er að skrifa
sögur- en það er ég sjálf. Ég hef
samið eina sögu og er að verða búin
með aðra. Þær eru morandi í stafsetn-
ingarvillum en á því má sjálfsagt ráða
bót. Ég ætlaði að senda aðra söguna í
skáldsagnasamkeppni Stórstúkunnar
en hún var ekki tilbúin áður en skila-
fresturinn rann út - og er satt að segja
ekki enn til.
Kær kveðja,
Bjargey Einarsdóttir,
Grund II
Hofsósi
Til Bjargeyjar: Við getum glatt þig með því
að skilafresturinn í skáldsagnasamkeppn-
inni var lengdur til næstu áramóta. Þú
hefur því ennþá möguleika á því að vera
með!
UTAN AF LANDI......UTAN AF LANDI
19