Æskan - 01.06.1986, Blaðsíða 13
Umsjón: Iðunn Steinsdóttir
Þegar veðrið er leiðinlegt eða við
erum lasin og þurfum að vera inni er
Sott að kunna hugleiki. Hugleikir eru
leikir sem hœgt er að fara í án þess að
hafa nokkuð dót og maður getur leikið
Þá Hggjandi í rúminu eða standandi á
böfði, eða bara sitjandi á stól. I hug-
Þátttakendur geta verið frá tveimur
jjPP í fjóra. Ef fleiri eru má skiptast á,
það er líka gaman að fylgjast með.
Ef aðeins tveir leika hugsar annar
ser að einhver ákveðin kona eða stelpa
s^ í hverju horni herbergisins - eða
oflsins ef maður er í bílferð. Hinn
flugsar sér ákveðinn karlmann eða
strák. Þegar búið er að setja stráka og
stelpur í öll hornin bendir annar þátt-
leikjum ruslast ekki út og þess vegna
þarf ekki að taka til á eftir. Þeir eru líka
heppilegir í löngum bílferðum þegar
maður er orðinn þreyttur á að telja
rauðu og bláu bílana sem koma á móti.
Einn slíkur leikur er leikurinn:
takandinn á eitt horn herbergisins og
segir hvaða stelpa sé þar. Hinn segir
þá hvaða strák hann hafi sett í hornið
með henni. Ef fleiri þátttakendur eru í
leiknum setur sá þriðji hús í hornin en
sá fjórði bfla.
Oft er mjög fyndið að heyra hverjir
lenda saman í hornunum, hvar þeir
búa og hvernig þeir aka. Einhvern
veginn svona gætu svörin verið:
I þessu horni býr Hófi (Hólmfríður
Karlsdóttir)
Hver er með henni?
Bjössi bolla
Hvar búa þau?
í Þjóðleikhúsinu
Hvernig bfl eiga þau?
Traktor
í þessu horni er Lína Langsokkur
Hver er með henni?
Laddi
Hvar búa þau?
í fjósi
Hvernig bíl eiga þau?
Strætó
Það er hægt að setja frægt fólk eða
persónur úr bókum eða bíómyndum í
hornin.
Svo er líka mjög gaman að setja fóli
sem maður þekkir, til dæmis krakkana
sem maður leikur við.
Góða skemmtun!
KÁTUR OG KÚTUR
AÐ GEFA í HORN
Kátur og Kútur hafa lofað móður sinni að sjá - Ó, kústurinn rauk af skaftinu! Hvað eigum við nú að
um vor-hreingerninguna. Þeir raða leikföng- gera? spyr Kútur,- Ég geri auðveldlega við það, segir
unum, þurrka af og sópa. Kátur. Hér eru hamar og naglar.
~ Hvað er að sjá þetta, Kátur? Kústurinn er en hann reynist svo fast negldur að þeir ná honum ekki
^stur við borðið. Við verðum að ná honum af. af. Loks segir Kátur: - Við verðum þá að hafa þetta
eir reyna að losa kústinn svona - en við getum nú samt söpað. Og það er miklu
skemmtilegra að sjá þig sópa á þennan hátt!
13