Æskan - 01.02.1988, Qupperneq 13
Séð yfir hluta tjaldbúðanna.
Ekki veitti af þrifum eftir þrautabrautastaut!
b°rgina. Sumir böðuðu sig við strönd-
lna’ aðrir reyndu sig í siglingum - og
^nhverjir fóru í verslanir.
ótið var haldið í Cataract skátagarðin-
Uln' ^ar var margt um manninn; 15000
* atar frá 90 þjóðlöndum áttu þar saman
lu ánægjulega daga.
Þessi skátagarður er 160 hektarar (!) að
Stærð og þar er allt sem þarf til að taka á
J*011 fjölmenni, s.s. hreinlætisaðstaða,
,V°ttahús, bankar, verslanir, pósthús,
sl°kkvistöð og sjúkrahús.
Glæsileg upphafsathöfn fór fram á afar
St0ru sviði en mótið var sett um mið-
nætti með flugeldasýningu og síðan var
ný)U ári fagnað með söng og dansi fram
e llr nóttu. Veðrið var gott, 15 stiga hiti
°§ íslensku þátttakendurnir kunnu því
*SKANi
vel - þótt einkennileg tilfinning fylgdi
því að dansa í grasinu - á stuttbuxum og
pilsum á nýjársnótt.
Strax og við höfðum reist tjöldin,
gengið frá tjaldbúðarsvæði okkar og
dregið fána að húni þyrpust að okkur er-
lendir skátar og vildu skipta á merkjum
og smáhlutum. Það er siður á mótum
sem þessu og meira var sóst eftir íslenska
fararmerkinu en nokkru öðru.
Dagskrá mótsins var mjög fjölbreytt.
Þar mátti spreyta sig á eða una sér við
klifur og sig, hellakönnun, bogfimi, rat-
leiki, íþróttir, dýraskoðun, vatnsbrautar-
„bunur“ og útsýnisflug yfir mótssvæðið
og Sidney. Þrautaferð á hjólum og um
Áskorendadalinn nutu þó einna mestrar
hylli.
Við íslendingarnir þágum strandferðir
með þökkum og vorum í essinu okkar
við sjó- og sólböð í 30 stiga hita! Skoðun-
arferðir um Sidney voru líka mjög vin-
sælar. Áhuga vöktu einkum tveir staðir:
Hið glæsilega óperuhús - og heimsfræg-
ur hamborgarastaður herra Dónalds!
Réttirnir þar voru kærkomin tilbreyting
frá fæðinu á mótsstað og skal játað að
ýmsir gerðu þeim góð skil.
Á kvöldin var margt til skemmtunar.
Á aðalsviðinu lék til að mynda Sinfón-
íuhljómsveit Sidney-borgar og þar voru
líka haldnir rokk- og djasstónleikar. Á
litlum sviðum víða um mótssvæðið voru
sýnd ýmis þjóðleg atriði við mikla hrifn-
ingu.
Samstaða Norðurlandaþjóðanna var