Æskan - 01.02.1988, Side 33
Marilyn Monroe—
endurfædd?
Kæra Æska.
Ég heiti Björg Ragnheiður Páls-
ottir. Ég er tíu ára og á heima í
opavogi. Mig langar til að eignast
Pennavini sem eru jafngamhr mér.
ugamál mín eru: Sund, frímerkja-
“ nun= fimleikar, dýr, söngur, dans,
ottlist o.fl. _ Að síðustu vil ég spyrja
Vkkur þriggja spurninga:
• Hvað kemur Æskan út oft á ári?
• Hvað heitir Eddie Murphy réttu
nafni?
3- Er satt að Madonna hafi sagt að
feckpVær* Marilyn ^onroe endur-
®iess, bless.
fyörg Ragnheiður Pálsdóttir,
Skólagerði 54, 200 Kópavogi.
Svör:
l- Æskan kemur út 10 sinnum á ári.
0 ublöðunum hefur verið fjölgað
Utn eitt.
3 y^ivord Regan Murphy.
■ Já, það er satt. Hún átti reyndar
B l v'ð að hún vceri Marilyn Mon-
r°e 1 raun heldur líktist henni í út-
hti.
LjóðasamKeppni—
Kæra Æska.
^ Ml6 iangar til að spyrja þig hvort
, . sé að efna til ljóðasamkeppni í
mu. Ég hef mikinn áhuga á því.
m leið og ég kem þessari ósk á
amfaeri sendi ég ykkur tvö ljóð:
8 ætla að semja skrítið ljóð,
sv° kátt sem ég segi,
yrir mína fögru þjóð,
a minnsta kosti þegi.
iiir sitja heima hér,
^ngja, vefa, prjóna.
n aðeins til að þóknast þér
°g honum gamla Skjóna.
Bima 12 ára.
—SKotinn í stelpu—
Kæra Æska.
Ég hef verið hrifinn af stelpu síðan
ég sá hana fyrst. Ég held að hún sé
ekki hrifin af mér og hafi því ekki
áhuga á að byrja með mér. Hvað á ég
að gera?
Með þökk fyrir birtinguna.
sos
Svar: Þú veitir svo takmarkaðar
upplýsingar um sjálfan þig og að-
stœður þínar að það er erfitt að ráð-
leggja þér nokkuð. Ef stelpan hefur
engan áhuga á þér enn sem komið er
þá er líklega fátt annað til ráða en
að reyna að kynnast henni betur,
gefa henni fceri á að sjá hvem mann
þú hefur að geyma í von um að
áhuginn kvikni. Þá fer hún kannski
að sjá þig í öðru Ijósi og verður hrif-
in af þér. En þú mátt alls ekki vera
með neina stœla við hana eða vera
of ýtinn. Veittu áhugamálum henn-
ar athygli og vertu kurteis. Ekki
tala of mikið um sjálfan þig! Það er
nefnilega ekki víst að hún hafi eins
mikinn áhuga á sjálfum þér og þið
bœði á henni. Skilurðu hvað við
eigum við? Gangi þér vel!
—Vatnið er blautt!—
Frábæra Æska.
Mamma hefur verið áskrifandi að
þér í 23 ár. Ég hef lesið öll blöðin og
mér finnst þau mjög góð. Enn höfum
við ekki fengið veggmynd af Whitney
Houston. Getið þið ekki bætt úr því
hið bráðasta? - Hér er svo skrítla:
Maður nokkur átti páfagauk sem
kunni að tala. Einn góðan veðurdag
ákvað maðurinn að fara í sund og tók
hann með sér. Páfagaukurinn horfði
á þegar hann bjó sig undir að stinga
sér í djúpa endann á lauginni. Allt í
einu galaði hann:
„Varaðu þig! Vatnið er BLAUTT!“
Kær kveðja,
Sunna Lind Smáradóttir,
Skólavegi 48, Fáskrúðsfirði.
—Bréf úr Mosfellsbæ-
Kæri Æskupóstur.
Ég er í 8. bekk Gagnfræðaskólans í
Mosfellsbæ og mig langar til að lýsa
félagsh'finu hér í bænum. Hérna er
æðislega gott að eiga heima og nóg
um að vera fyrir ungt fólk. Nokkur
böll hafa verið haldin í vetur. M.a.
komu Greifarnir í eitt skipti og einu
sinni var haldið svonefnt „rokkball“.
Opin hús eru í félagsmiðstöðinni Bóli
á þriðjudögum og fimmtudögum. Á
mánudögum og miðvikudögum er
klúbbastarf, t.d. eru starfandi hesta-
klúbbur, borðtennisklúbbur og al-
mennur klúbbur sem fer m.a. á skíði,
skauta, heldur myndbandakvöld o.fl.
Íþróttalífið er alveg ágætt. Hægt er
að æfa handknattleik, knattspyrnu,
sund, frjálsar íþróttir og hnit (bad-
minton). Skilyrði til íþróttaiðkana
eru mjög góð og eiga eftir að verða
betri því að Landsmót ungmennafé-
laganna verður haldið hér árið 1990.
T.d. er verið að gera nýjan útileik-
völl.
Jæja, þá ætla ég ekki að hafa þetta
lengra að sinni. Reyndar eitt að lok-
um: Hvað lestu úr skriftinni?
Ronja
Svar: Úr skriftinni lesum við að þú
sért vel greind, ákveðin, metnaðar-
gjöm og hafir góða stjóm á sjálfri
þér.
—Heimilisfang Unnar-
Kæri Æskupóstur.
Geturðu gefið mér heimilisfang og
símanúmer Unnar Berglindar, kynnis
í Töfraglugganum. Hún var í viðtali
hjá ykkur í 8. tbl. Það væri frábært ef
þið gætuð birt veggmynd af henni.
Með kærri kveðju.
Maja.
Svar: Því miður getum við hvorki
skýrt þér frá heimilisfangi né síma-
númeri Unnar Berglindar. Það er
regla hjá flestum (líklega öllum) ís-
lenskum tímaritum að gefa alls ekki
þessar upplýsingar um þekkt fólk.
Það er reynandi fýrir þig, ef þú vilt
komast í kynni við Unni Berglindi,
að skrifa Töfraglugganum í Sjón-
varpinu.
33