Æskan - 01.02.1988, Qupperneq 47
Kátur og Kútur
Broddgölturinn hefur setið lengi og
fylgst með bræðrunum leika golf.
Hann er sannast sagna kominn með
hálsríg af því að horfa á eftir kúlunum.
- Nú skal ég sýna þér hvernig þeir leiknustu fara að, segir Kátur. Hann
sveiflar kylfunni af krafti og kúlan flýgur langar leiðir. - Þar fór hún veg
allrar veraldar, hugsar Broddi. Þeir finna hana ekki aftur. Glæsilegu flugi
kúlunnar um loftið lýkur þó ekki þar sem skyldi heldur hafnar hún
í poka kengúrumömmu. - Nú
skal ég stríða þeim, hugsar keng-
úran og hleypur af stað með kúl-
una.
Kátur og Kútur hrópa hátt og biðja hana að skila kúlunni. Þeir hlaupa, sem
fætur toga, á eftir kengúrumömmu og Broddi reynir að halda í við þá. - Þetta er
auðvitað ógaman, tautar hann, en verra hefði verið að týna kúlunni alveg! Loks
staðnæmist kengúran. - Hér er kúlan en gætið ykkar betur svo að hún lendi ekki
á okkur hinum. Þið voruð heppnir að barnið mitt var ekki í pokanum. Það hefði
fengið kúlu í og á höfuðið!
^ro!)MiA/jA5AFNr
125 f\Rh
y'tikniíamiepfni
*SKANi
Teiknisamkeppni
Þjóðminjasafn íslands varð 125 ára í
febrúar. í tilefni þess efnir safnið til
teiknisamkeppni. Enda þótt komið sé
nærri lokadegi skilafrests - sem er 15.
mars - viljum við minna lesendur á
keppnina.
Myndunum verður skipt í flokka eftir
aldri listamannanna :
1) 6-9 ára, 2) 10-12 ára, 3) 13-16 ára.
Þrenn verðlaun verða veitt í hverjum
flokki og eru það silfurafsteypur af þórs-
hamri. í Þjóðminjasafninu verður sýning
á myndunum; svo mörgum sem mögu-
legt reynist. Dómnefnd skipa Þór Magn-
ússon þjóðminjavörður, Rakel Péturs-
dóttir safnkennari Listasafns íslands og
Þóra Kristjánsdóttir hstfræðingur.
Myndefni
Myndirnar eiga að vera af einhverju sem
tengt er fortíðinni og/eða söfnun og varð-
veislu menningarminja. Þær geta t.d.
verið af munum á Þjóðminjasafninu eða
byggðasöfnunum, eða af gömlum húsum
eða húsarústum. Þær geta líka verið af
daglegu lífi fólks áður fyrr eða af atburð-
um úr íslandssögunni. Einnig má teikna
myndir af söfnum framtíðarinnar: Hvað
verður sýnt á Þjóominjasafninu eftir 300
ár?
Munið að skilafrestur er til 15. mars
nk. Skrifið nafn, aldur, heimilisfang og
síma á bakhlið teikninganna og sendið
þær til Þjóðminjasafns íslands - Teikni-
samkeppni - , Pósthólf 1489, 121 Reykja-
vík.