Æskan - 01.05.1988, Síða 17
ÍK
rösku ári eftir að það kom út.!!
„Þetta er þessi landlæga blanda af
núnnimáttarkennd og stórmennsku-
örjálæði sem við íslendingar erum
haldnir," útskýrir Björk skilningsrík.
»íslendingar taka ekki nýjungum
nema þær séu fyrst viðurkenndar er-
lendis eða að þeim sé hreinlega troðið
UPP á þá. Ég sjálf er ekkert skárri.
Svo að ég taki dæmi um hlut sem ég
fylgist h'tið með, skákina, þá rétt
kannaðist ég við nöfn íslensku skák-
mannanna. En þegar Jóhanni gekk
svona vel þarna úti þá varð ég ofsa-
lega stolt fyrir hans hönd eins og
venjulegur, heiðvirður íslendingur.
Ég viðurkenni að þetta er viss hræsni
en þetta er h'ka ósköp venjuleg til-
finning sem er í okkur öllum.“
Með heimsfrægð sinni hafa Sykur-
ntolarnir náð ákveðnu forystuhlut-
verki í íslenskri poppmúsík. Þeir eru
hljómsveitin sem miðað er við,
hljómsveitin sem vísar veginn. Það
væri því gaman að fá skoðanir Bjark-
ar á íslenska poppvettvangnum um
þessar mundir.
„Það hefur oft áður verið meira að
gerast. En það hefur ekki alltaf farið
saman að mikið sé að gerast og að gæði
séu mikil. Það er margt gott á ferð-
inni núna. Reyndar er ég svolítið
vonsvikin yfir Röggu Gísla. Ég hef
bundið miklar vonir við hana alveg
frá því ég var 11 ára. Ég var sannfærð
um að hún myndi gera einhverja góða
hluti. En Svart-hvíti draumurinn er
mjög góð hljómsveit. Hann hefur
staðið sig mjög vel. Svo eru það ein-
stakhngar eins og Megas. Annars
finnst mér óþægilegt að tína svona
eitt og eitt nafn út úr. Þetta er svo
mikið undir manni sjálfum komið. Ef
maður er áhugasamur og leitar þá
finnur maður vmislest sott.“
VI55IR
ÞÚ...?
Michael Jackson
. . . Að Mikjáll Jackson hefur fyrst-
ur manna náð að koma fjórum lögum
af einni og sömu plötunni í 1. sæti
bandaríska vinsældalistans - og hefur
alls komið 15 lögum £ það sæti? Á
þessu sviði er hann þó aðeins hálf-
drættingur á við vinsælasta poppara
allra tíma, bítihnn Poul McCartney.
Hann hefur átt 30 lög í 1. sæti banda-
ríska hstans. Næstir í röðinni eru
John heitinn Lennon og George
Harrison með 24 lög hvor.
. . . að flest erlend poppblöð, sem
sagt hafa frá útkomu nýju Smither-
eens-plötunnar, “Green Thoughts“,
hafa látið þess getið að fyrri plata
hljómsveitarinnar, „Especially for
you“, komst í fyrsta sæti íslenska
breiðskífulistans. Ástæðan fyrir því
hve útlendingar fylgjast vel með ís-
lenska vinsældalistanum er að útgáfu-
fyrirtæki Smithereens, Enigma, sendi
heimspressunni sérstaka fréttatil-
kynningu um árangur Smithereens á
íslandi. Plata þeirra seldist í 1.250
eintökum hérlendis á fyrstu þremur
mánuðunum frá útkomu hennar og
það nægði henni til að ná 1. sæti ís-
lenska sölulistans.
. . . að öll helstu poppblöð Breta hafa
á síðustu mánuðum slegið Sykurmol-
unum upp á forsíðu hjá sér, ásamt
því að birta við þá opnuviðtöl (sem
spanna iðulega upp í fjórar bls.)?
Melody Maker (Lagasmiður) hefur
m.a. lagt þrjár forsíður undir Sykur-
molana á sex mánuðum!!
Easterhouse
. . . að um svipað leyti og þetta tbl.
Æskunnar kemur út er von á annarri
plötu írsk/ensku rokksveitarinnar Ea-
sterhouse. Með fyrri plötunni, „Con-
tenders“, urðu Easterhouse á svip-
stundu ein efnilegasta og vinsælasta
nýrokksveit Breta. Hún var kölluð
„ný U2“ og „arftaki Joy Division“.
Hérlendis seldust mörg hundruð ein-
tök af plötunni. Síðan fór allt í háa-
loft hjá strákunum og á tímabih stóð
til að nokkrir þeirra gengju í hljóm-
sveitina Smiths. Endirinn varð þó sá
að Easterhouse klofnaði. Annar
helmingurinn setti á laggir hljóm-
sveitina The Cradle (Vögguna) með
Craig Cannon, fyrrum gítarleikara
Smiths. Hinn hlutinn fyllti í skarðið
með nýjum mönnum og er að gefa út
plötu undir nafninu Easterhouse.
. . . að hljómsveitinni Rickshaw hef-
ur bæst góður liðsauki? Þar er um að
ræða rokksöngvarann Þórð Bogason
sem sat mánuðum saman á „íslenska
listanum“ svonefnda með lagið
„Komdu í partí“ í fyrrahaust. Þá
söng Þórður með Foringjunum. Þar
áður söng hann með Röddinni,
Hjálparsveitinni, Þrym, Þreki og F.
Með Rickshaw spilar Þórður á gítar
ásamt söngnum.
. . . að nýrokksveitin Blátt áfram er
hætt? Sigvarður gítarleikari er kom-
inn af stað með nýja hljómsveit, Fé-
laga forseta. Með í leiknum er
söngvarinn Jón Helgi (leikari hjá
Hugleik), Jómbi trymbill, kunnur úr
rokksveitum Sigga Pönkara, s.s.
Gargi og geðveiki og Beatnecks,
og Guðjón bassaleikari, bróðir Sig-
tryggs, bassaleikara Sykurmolanna
heimsfrægu.